Um Stefni
Um StefniStefnir hf. er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með um 330 milljarða króna í virkri stýringu. Hlutverk félagsins er að stýra fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Stefnir þjónar jafnt einstaklingum sem fagfjárfestum.
Félagið var stofnað árið 1996. Stefnir hefur á að skipa þaulreyndu starfsfólki með yfir 10 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði að meðaltali. Hjá Stefni starfa 17 sérfræðingar í fjórum teymum við stýringu á fjölbreyttu úrvali verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða. Einnig stýrir félagið eignum nokkurra samlagshlutafélaga sem stofnuð hafa verið í kringum framtaksfjárfestingar.
Félagið hefur allt frá upphafi verið í fararbroddi í þróun á nýjum tegundum sjóða, jafnt fyrir einstaklinga sem fagfjárfesta. Við þróun og stýringu sjóða er fyrst og fremst horft til hagsmuna viðskiptavina auk þess sem áhersla er lögð á árvekni, yfirsýn og öfluga fagþekkingu.
Frekari upplýsingar um Stefni má finna hér.