Karlakórinn Stefnir

1940

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Velkomin á heimasíðu Stefnis í Mosfellsbæ

Sumarfrí, en svo Kötlumót í haust

E-mail Print PDF

Þá er komið sumar og Stefnir farinn í sumarfrí. við þökkum styrktarfélögum, tónleikagestum og velunnurum öllum fyrir veturinn. Við munum byrja með krafti í haust en stefnt er á að taka þátt í Kötlumóti sem haldi verður 16. október 2010. En Katla er samband sunnlenskra karlakóra og eru langflestir karlakórar sem starfa á sunnanverðu landinu félagar í Kötlu. Mótið að þessu sinni verður haldið að Flúðum í hrunamannahreppi og er Karlakór Hreppamanna gestgjafar að þessu sinni. Gert er ráð fyrir að 14 kórar með 600 söngmönnum taki þátt.

Gleðilegt sumar, heyrumst hress í haust!

Last Updated ( Thursday, 10 June 2010 09:13 )
 

Aðalfundur 2010

E-mail Print PDF

Þriðjudaginn 4. maí var haldinn aðalfundur Stefnis í Harðarbóli. Helstu tíðindi eru þau að nýr formaður var kjörinn á fundinum en það er Guðmundur Pétursson er skipar sér í raðir 1. tenórs í kórnum.  Fráfarandi formaður, Hörður Björgvinsson sem gegnt hefur starfi formanns undanfarin 11 ár gaf ekki kost á sér árfam en það eru ekki margir sem hafa setið jafn lengi á formannsstóli. Á ýmsu hefur bjátað í formannstíð Harðar eins og gengur en honum hefur tekist farsældlega að leiða kórinn í gegn um öll mál er upp hafa komið og lagt mikkla vinnu í formannsstarfið. Eru kórmenn honum afar þakklátir fyrir þessi ár. Þá ganga úr stjórn eftir áralanga stjórnarsetu þeir Bjarni Már Ragnarsson og Sigurjón Karlsson og eru þeim einnig færðar ómældar þakkir fyrir digga stjórnarsetu og ýmis störf fyrir kórinn.

Guðmundi eru færðar árnaðaróskir með kjörið en með honum í stjórn eru Heiðar Jóhannsson og Ingvi R Guðmundsson sem sitja úr fyrri stjórn, en nýir inn eru Valur Páll Þórðarson og Finnur Ingimarsson.

Last Updated ( Friday, 14 May 2010 16:09 )
 

Hestamessa

E-mail Print PDF

Sunnudaginn 9. maí söng Stefnir við hestamessu sem haldin var að Mosfelli. Félagar í hestamannafélaginu Herði riðu í hópreið til kirkju en þetta var í þriðja skiptið sem Stefnir sér um söng við slíka messu er haldin hefur verið að vori nú um nokkurt skeið. Í öll skiptin sem Stefnir hefur tekið þátt í þessu hefur verið alveg glimrandi veður, þannig að varla er verandi á sönglofti Mosfellskirkju sökum hita. Vestan andvari bætti þó úr í þetta skiptið þar sem gaf smá kul inn um opinn glugga. Vel var mætt og sat fólk í andyri kirkjunnar. Þá var ein stúlka fermd í messunni.  Séra Skírnir Garðarsson prédikaði og þjónaði fyrir altari, Gunnar ben stjórnaði söng og Judy Þorbergsson sat við orgelið.

Last Updated ( Sunday, 09 May 2010 20:00 )
 

Á línunni

We have 9 guests online

Valdar myndir

petursborg5.JPG

Viðburðadagatal

July 2010
S M T W T F S
27 28 29 30 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Næsti viðburður