Stefnir - Eignastýringarsjóður
Blandaðir sjóðir

Fjárfestingarstefna

Stefnir - Eignastýringarsjóður er blandaður sjóður og hefur því heimild til að fjárfesta í skuldabréfum oghlutabréfum. Markmið sjóðsins er að ávaxta fjármuni hlutdeildarskírteinishafa á virkan hátt meðþví að nýta þau tækifæri, innanlands sem erlendis, sem rekstraraðili metur best á hverjum tíma.Áhersla er á að fjárfesta í sjóðum fremur en einstökum bréfum til að auka áhættudreifingu. Sjóðurinn er áþekkur Stefni - Samvali en nokkuð áhættuminni þar sem meiri áhersla er á skuldabréf og minni hreyfingar eru á milli eignaflokka.

Eignaskipting

Nafnávöxtun

Verðþróun

Blandaðir sjóðir
Stefnir - Eignastýringarsjóður
Stefnir hf.
Borgartún 19
444 7000
www.stefnir.is

Fjárfestingarheimildir

<table border="1" cellpadding="1" cellspacing="1" style="width:500px"><tbody><tr><td>Innlend skr&aacute;&eth; skuldabr&eacute;f</td><td>0-25%</td></tr><tr><td>Hlutdeildarsk&iacute;rteini sj&oacute;&eth;a um sameiginlega fj&aacute;rfestingu *</td><td>25-100%</td></tr><tr><td>A&eth;rir sj&oacute;&eth;ir um sameiginlega fj&aacute;rfestingu, fagfj&aacute;rfestasj&oacute;&eth;ir</td><td>0-20%</td></tr><tr><td>Skuldabr&eacute;f og v&iacute;xlar &uacute;tgefin af r&iacute;kinu e&eth;a me&eth; &aacute;byrg&eth; &iacute;slenska r&iacute;kisins</td><td>0-50%</td></tr><tr><td>Innlend skr&aacute;&eth; hlutabr&eacute;f</td><td>0-25%</td></tr><tr><td>Erlend skr&aacute;&eth; ver&eth;br&eacute;f/fj&aacute;rm&aacute;lagerningar</td><td>0-50%</td></tr><tr><td>Innl&aacute;n fj&aacute;rm&aacute;lafyrirt&aelig;kja</td><td>0-50%</td></tr><tr><td>A&eth;rir fj&aacute;rm&aacute;lagerningar en um er geti&eth; &iacute; ofangreindum eignaflokkum</td><td>0-10%</td></tr></tbody></table><p><em>&nbsp;*&Aacute; b&aelig;&eth;i vi&eth; um skuldabr&eacute;fasj&oacute;&eth;i og hlutabr&eacute;fasj&oacute;&eth;i. Sj&oacute;&eth;urinn getur &thorn;v&iacute; veri&eth; 0-100% &iacute; skuldabr&eacute;fum og 0-100% &iacute; hlutabr&eacute;fum.</em><br />&nbsp;</p>

Fyrirvari

Þær upplýsingar sem hér koma fram eru óendurskoðaðar.

Stefnir hf. rekur sérhæfða sjóði skv. lögum nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og verðbréfasjóði skv. lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði.

Vakin er sérsök athygli á að fjárfesting í hlutdeildarskírteinum sjóða er áhættusöm og getur fjárfesting rýrnað eða tapast að öllu leyti. Sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta telst almennt vera áhættusamari fjárfesting en verðbréfasjóður. Þessi meiri áhætta er fólgin í rýmri fjárfestingarheimildum sem geta meðal annars leitt til minni áhættudreifingar en í verðbréfasjóði.

Ávöxtun er almennt sett fram sem nafnávöxtun í uppgjörsmynt hvers sjóðs að frádregnum kostnaði sem fallið hefur á sjóðinn á hverjum tíma, svo sem umsýsluþóknun, viðskiptakostnaður og annar kostnaður. Gjald við kaup og afgreiðslugjald sem er innheimt fyrir fjárfestingu er ekki innifalið í útreikningi á ávöxtun sjóðanna.

Stefnir hf. hefur skipt verðbréfa- og sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta í rekstri félagsins í sjö flokka byggt á samanteknum áhættuvísi í samræmi við II. viðauka framseldrar reglugerðar (ESB) 2017/653 og byggir hún á flökti á ársgrundvelli sem samsvarar vágildi (e. value-at-risk (VaR)) við öryggisstig 97,5% á ráðlögðum fjárfestingartíma. Flokkur 1 ber minnstu sveiflurnar í ávöxtun en flokkur 7 mestu sveiflurnar. Flokkun sjóðs getur breyst ef sveiflur undirliggjandi fjármálagerninga taka breytingum. Mælikvarðinn byggir eingöngu á sögulegum sveiflum í ávöxtun. Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um ávöxtun í framtíð og tekur ekki mið af þeim ýmsu áhættum sem verðbréfa- og sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta kunna að búa við í rekstri sínum. Þá kann flokkunin að breytast fyrirvaralaust. Áhættumælikvarðinn er ekki almenn lýsing á þeirri áhættu sem fylgir fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum sjóða. Öllu heldur er um að ræða tölfræðilega, hlutbundna lýsingu á eignum þeirra fjölmörgu áhættuþátta sem geta verið til staðar við fjárfestingu í slíkum fjármálagerningum. Frekari umfjöllun um helstu áhættuþætti er að finna í útboðslýsingu hvers sjóðs. Bent er á að ekki er tryggt að sögulegar sveiflur í ávöxtun sjóðs hafi forspárgildi um framtíðarsveiflur í ávöxtun hans. Jafnframt er bent á að sjóðir í flokki 1 eru ekki áhættulaus fjárfesting og engin trygging er fyrir ávöxtun upphaflegrar fjárfestingar eða fullrar innheimtu hennar.

Innstæður sjóða um sameiginlega fjárfestingu njóta ekki tryggingarverndar samkvæmt lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta

Nánari upplýsingar um sjóðinn, þar á meðal nánari upplýsingar um áhættu við fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum hans, má finna í útboðslýsingu eða lykilupplýsingum sjóðsins sem nálgast má í útibúum Arion banka eða á www.stefnir.is/sjodir.