Þriðjudaginn 7. September verður nýliðakvöld hjá Stefni. Nýir félagar verða boðnir velkomnir, kaffibolli og kannski eitthvað með því í boði. Kynning á starfsemi kórsins og Gunnar Ben stjórnandi mun skipa mönnum í raddir. Allir sem hafa einhvern áhuga á að kynna sér kórstarfið eru eindregið hvattir til að mæta í Krikaskóla í Mosfellsbæ kl 19:30. Best er að vera með frá upphafi. Þetta er áskorun, einnig til félaga sem hafa tekið sér frí í lengri eða skemmri tíma!!






Subscribe to RSS Feed