Frétt

23. ágúst 2019

Sigrún Ragna kemur í stað Hrundar

Sigrún Ragna kemur í stað Hrundar

Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas, hefur gengið úr stjórn Stefnis, þar sem hún hefur gegnt stöðu stjórnarformanns frá árinu 2009. Hrund ákvað fyrir nokkru að gefa ekki kost á sér áfram sem stjórnarformaður Stefnis eftir 10 ára árangursríkt starf í þágu félagsins.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir var kosin í stjórnina í hennar stað og mun taka við stjórnarformennskunni.

Sigrún Ragna hefur fjölbreytta reynslu af fjármálamarkaði. Sigrún Ragna var forstjóri VÍS á árunum 2011-2016. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandsbanka og þar áður hjá Deloitte, þar sem hún var meðeigandi. Sigrún Ragna hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja, í mörgum ólíkum geirum. Þar má nefna Vörð tryggingar, Reiknistofu bankanna, Auðkenni, Creditinfo Group og Creditinfo Lánstraust. Sigrún Ragna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi. Sigrún Ragna útskrifaðist með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007.

Aðrir í stjórn Stefnis eru Kristján Jóhannsson, sem jafnframt er varaformaður stjórnar, Flóki Halldórsson, Ragnhildur Sophusdóttir og Þórður Sverrisson.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, nýr stjórnarformaður Stefnis:

„Ég hlakka til að starfa með öflugu teymi hjá Stefni að áframhaldandi uppbyggingu á vöruframboði og þjónustu við viðskiptavini félagsins. Stefnir hefur verið leiðandi á sínu sviði og ég mun leggja mitt af mörkum til að svo verði áfram.“

Hrund Rudolfsdóttir, fráfarandi stjórnarformaður Stefnis:

„Undanfarin 10 ár hafa verið viðburðarík í sögu Stefnis. Tíminn hefur einkennst af markvissri uppbyggingu í kviku og breytilegu umhverfi. Við höfum náð góðum árangri en nú finnst mér kominn tími á að nýtt fólk komi að málum. Ég tók við hlutverki stjórnarformannsörfáum mánuðum eftir hrun og var það bæði áskorun og mikil reynsla. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og stórfelldar breytingar hafa orðið í ytra umhverfi og innra skipulagi Stefnis. Ég vil þakka öllu því fjölmarga starfsfólki, og einnig stjórnarmönnum sem hafa unnið með mér, fyrir ánægjulega samfylgd í heilan áratug.“

 

Til baka

Fleiri fréttir

15.janúar 2024

100% afsláttur af sjóðum til 5. febrúar

Í tilefni af verkefninu Konur fjárfestum er engin þóknun við kaup á sjóðum Stefnis frá 12. janúar til og með 5. febrúar 2024. Afslátturinn af þóknun gildir við...

29.ágúst 2023

Stefnir birtir fjármagnaðan útblástur gróðurhúsalofttegunda

Stefnir stýrir fjármunum fyrir hönd viðskiptavina sinna og leggur ríka áherslu á að gera það með ábyrgum og gagnsæjum hætti.

09.ágúst 2023

Stefnir styrkir Einvígið á Nesinu

Stefnir er stoltur styrktaraðili Einvígisins á Nesinu. Þetta árið hlaut Félag áhugafólks um Downs-heilkennið styrk Stefnis og Birgir Björn úr GK var sigurvegari...