Frétt

28. febrúar 2014

Gengið frá kaupum á stórum hluta af innlendum eignum Norvikur

Gengið frá kaupum á stórum hluta af innlendum eignum Norvikur
SÍA II, framtakssjóður í rekstri Stefnis, hefur ásamt hópi fjárfesta gengið frá kaupum á hluta af innlendri starfsemi Norvikur í gegnum Festi hf., sem verður nýtt móðurfélag hinna seldu félaga. Með kaupunum tekur Festi yfir rekstur Kaupáss, sem rekur matvöruverslanir undir merkjum Krónunnar, Nóatúns og Kjarvals, Elko, Intersport, auglýsingastofunnar Expo og vöruhótelsins Bakkans. Þá hefur Festi jafnframt gengið frá kaupum á hluta af fasteignasafni Smáragarðs.

Festi hf. er í eigu SF V slhf. og eru hluthafar um 30 talsins. SÍA II er stærsti einstaki hluthafi félagsins með um 27% hlut. Lífeyrissjóðir eru með um 32% hlut, tryggingafélög og sjóðir 15% og einkafjárfestar um 26%. Nýja stjórn Festi skipa Arnar Ragnarsson, Guðjón Karl Reynisson, Helga Hlín Hákonardóttir, Þóranna Jónsdóttir og Hreggviður Jónsson, sem er formaður stjórnar. Þá hefur Jón Björnsson verið ráðinn forstjóri Festi og mun taka samstundis til starfa. Jón var áður forstjóri ORF Líftækni en hann hefur meðal annars gegnt starfi forstjóra Magasin du Nord og Haga hf. 

Arctica Finance, BBA Legal og Deloitte veittu kaupendum ráðgjöf við kaupin en Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, Logos og KPMG voru ráðgjafar Norvikur við söluna.

Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður Festi:

„Það eru spennandi tímar framundan í rekstri Festi og dótturfélaga þess. Það er breiður hópur hluthafa sem kemur að þessum kaupum og sjáum við fjölda tækifæra í að þróa áfram þann rekstur sem hefur verið byggður upp af myndarskap og hefur á að skipa metnaðarfullu og hæfu starfsfólki. Þetta eru fyrirtæki sem starfa á markaði sem skiptir neytendur miklu máli og munum við kappkosta að bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval, hagstætt verð og góða þjónustu.“

Jón Helgi Guðmundsson:

„Það er mat okkar fjölskyldunnar að nú sé komið að kynslóðaskiptum í þeirri starfsemi sem við höfum byggt upp og því tímabært fyrir nýja eigendur að koma að borðinu. Eins og gefur að skilja er okkur ekki sama hverjir taka við keflinu á þessum tímamótum eða hvernig á því verður haldið og það skiptir okkur miklu að nýir eigendur deila að miklu leyti okkar sýn um uppbyggingu fyrirtækisins. Í kjölfar þessara viðskipta munum við einbeita okkur að rekstri Byko og tengdra fasteigna, auk erlendrar starfsemi. Á þessum tímamótum viljum við einnig færa því starfsfólki sem hefur starfað fyrir okkur í gegnum tíðina þakkir fyrir þeirra vel unnu störf.“

Til baka

Fleiri fréttir

15.janúar 2024

100% afsláttur af sjóðum til 5. febrúar

Í tilefni af verkefninu Konur fjárfestum er engin þóknun við kaup á sjóðum Stefnis frá 12. janúar til og með 5. febrúar 2024. Afslátturinn af þóknun gildir við...

29.ágúst 2023

Stefnir birtir fjármagnaðan útblástur gróðurhúsalofttegunda

Stefnir stýrir fjármunum fyrir hönd viðskiptavina sinna og leggur ríka áherslu á að gera það með ábyrgum og gagnsæjum hætti.

09.ágúst 2023

Stefnir styrkir Einvígið á Nesinu

Stefnir er stoltur styrktaraðili Einvígisins á Nesinu. Þetta árið hlaut Félag áhugafólks um Downs-heilkennið styrk Stefnis og Birgir Björn úr GK var sigurvegari...