Established Icelandic asset management company whose role is to manage clients’ assets with their best interests as the guiding principle.
Stefnir er rótgróið íslenskt sjóðastýringarfyrirtæki með um 379 milljarða króna í virkri sjóðastýringu í lok árs 2025. Hlutverk félagsins er að stýra fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Stefnir þjónar jafnt einstaklingum sem fagfjárfestum. Félagið var stofnað árið 1996.
Stefnir hefur á að skipa þaulreyndu starfsfólki með mikla starfsreynslu á fjármálamarkaði og tengda menntun. Hjá Stefni starfa um 22 sérfræðingar í þremur teymum við stýringu á fjölbreyttu úrvali verðbréfa- og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta.