Frétt
100% afsláttur af sjóðum til 5. febrúar
Í tilefni af verkefninu Konur fjárfestum er engin þóknun við kaup á sjóðum Stefnis frá 12. janúar til og með 5. febrúar 2024. Afslátturinn af þóknun gildir við kaup sem eiga sér stað í Arion appinu eða netbanka.
Ófjárráða njóta að sjálfsögðu einnig 100% afsláttar á sama tímabili og viðskiptabeiðnir þurfa þá að berast til radgjof@arionbanki.is.
Stefnir hefur upp á að bjóða eitt fjölbreyttasta sjóðaúrval hér á landi. Allir sem vilja ávaxta fé sitt ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru skuldabréfasjóðir, innlendir eða erlendir hlutabréfasjóðir eða blandaðir sjóðir. Sjóði Stefnis má finna hér.
Við kaup í sjóðum er innheimt söluþóknun í formi mismunar á kaup-og sölugengi (einnig kallað gengismunur eða upphafsþóknun). Söluþóknun er ekki innheimt við kaup í Stefni - Lausafjársjóði og Stefni - Sparifjársjóði. Í netbanka Arion banka er ávallt veittur 25% afsláttur af söluþóknun sjóða Stefnis sem er 100% afsláttur í dag og til og með 5. febrúar 2024. Í reglubundnum sparnaði hlýtur þú 50% afslátt af söluþóknun viðkomandi sjóðs.
Fleiri fréttir
20.júní 2025
Stefnir leitar að sérfræðingum í áhugaverð störf
Leitað er að einstaklingum með brennandi áhuga á sjóðastýringu og íslensku atvinnu- og efnahagslífi. Um er að ræða starf sérfræðings í almenn störf innan...
03.júní 2025
Stefnir og HILI hefja samstarf um fyrsta íbúðasjóð Íslands í sameignarformi
Stefnir hf. hefur gert samstarfssamning við HILI með það að markmiði að opna aðgang að nýjum eignaflokki fyrir fjárfesta með því að fjárfesta í vönduðum...
15.apríl 2025
Engin upphafsþóknun eða lágmarkskaup í sjóðum Stefnis
Stefnir hefur fellt niður upphafsþóknun vegna viðskipta í sjóðum félagsins þegar viðskipti eiga sér stað í gegnum Arion appið eða netbanka þar sem ekkert...