Frétt
Stefnir og HILI hefja samstarf um fyrsta íbúðasjóð Íslands í sameignarformi
Samstarf til að efla sameign á íbúðamarkaði á Íslandi. Frá vinstri: Sigurður Viðarsson (framkvæmdastjóri, HILI á Íslandi), Eilin Schjetne (forstjóri og stofnandi HILI), Kristbjörg M. Kristinsdóttir (fjármálastjóri, Stefnir) og Jón Finnbogason (framkvæmdastjóri, Stefnir).
Reykjavík/Ósló – 2. júní 2025 – Stefnir hf. hefur gert samstarfssamning við HILI með það að markmiði að opna aðgang að nýjum eignaflokki fyrir fjárfesta með því að fjárfesta í vönduðum íbúðareignum á Íslandi í gegnum nýja sameignarlausn sem HILI hefur þróað.
„Við nýtum reynslu okkar á eignastýringarmarkaði og vettvang HILI til að stuðla að stækkun sameignarforms á íbúðamarkaði á Íslandi,“ segir Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis. „Í gegnum HILI getum við veitt fjárfestum aðgang að fjölbreyttu safni vandaðra íbúðaeigna án þess að fjárfestar þurfi að standa í rekstri fasteigna. Þannig bjóðum við nýjan fasteignatryggðan eignaflokk með miklum vaxtarmöguleikum. Samstarf okkar við HILI er að okkar mati rökrétt framhald þess að við leiddum þá vinnu að hópur lífeyrissjóða festi kaup á Heimstaden hf. í fyrra, en það er stærsta íbúðaleigufélagi Íslands sem eigandi að 1.900 íbúðum á þeim tíma.“
Samstarf Stefnis og HILI er skref í að útbreiða sameignarformið um allt land.
Stefnir er eitt af stærstu eignastýringarfélögum Íslands með um 341 milljarð króna í stýringu í fjölbreyttum eignaflokkum, svo sem innlendum og erlendum skráðum hlutafélögum, óskráðum innlendum hlutafélögum, ríkisskuldabréfum, fyrirtækjaskuldabréfum, á peningamarkaði og í fasteignum. Stefnir hf. hefur góða reynslu á sviði fasteignafjárfestinga en fyrsti sjóðurinn um sameignarformið á fasteignum, HILI I slhf., verður fimmti fasteignasjóðurinn sem Stefnir hf. stofnar.
Hjálpar eigendum að losa um bundið fé úr fasteignum sínum og nýjum íbúðareigendum á markaðinn
Fyrir marga fasteignaeigendur er stór hluti eigna bundinn í heimilinu. HILI býður sveigjanlega lausn sem gerir þeim kleift að losa hluta af því fé með því að selja hluta eignarinnar en halda áfram að búa í henni.
„Þetta samkomulag markar upphaf langtímasamstarfs við Stefni“ segir Sigurður Viðarsson, framkvæmdastjóri HILI á Íslandi. „Við erum að kynna nýjan og áhugaverðan eignaflokk fyrir íslenskum fjárfestum, með því að bjóða ný fjárfestingartækifæri í fasteignum. Stefnir mun gegna lykilhlutverki í rekstri og fjármögnun íbúðasjóðs HILI og styðja við útbreiðslu sameignarvettvangs á Íslandi. Þá er einnig ljóst að sameignarform mun jafnframt nýtast vel þeim sem eru að fjárfesta á fasteignamarkaði eða færa sig á milli fasteigna.“
Nýtt samstarf: Stefnir og HILI sameina krafta til að skapa sveigjanlegra húsnæðisform á Íslandi.
Ísland styður við vegferð HILI til annarra landa í Evrópu
HILI starfar nú þegar á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð og Danmörku og hyggst stækka frekar í Evrópu. Á Íslandi hefur eftirspurn verið mikil en yfir 300 fasteignaeigendur hafa nú þegar skráð sig á biðlista til að kanna möguleikann á að selja hluta af eign sinni til sjóðsins, jafnvel þó starfsemi fyrsta sjóðsins sé ekki enn hafin.
„Við höfum nú þegar fundið fyrir miklum áhuga á íslenska markaðnum og með Stefni sem samstarfsaðila erum við vel í stakk búin til að stækka starfsemina og auka sveigjanleika fyrir fasteignaeigendur,“ segir Eilin Schjetne, forstjóri og stofnandi HILI. „Reynsla Stefnis á íslenskum fasteignamarkaði og tengsl við fjárfesta mun styðja við uppbyggingu okkar á Íslandi. Þetta stefnumiðaða samstarf undirstrikar mikilvægi sveigjanlegra eignarforma og styður við víðtækari áætlanir HILI um útbreiðslu í Evrópu.“
HILI býður upp á einstakt sameignarform á Evrópumarkaði sem gerir fasteignaeigendum kleift að losa eigið fé án þess að selja né taka lán, og á sama tíma opnast ný tækifæri fyrir fjárfesta til þess að fjárfesta í fasteignum.
Nánari upplýsingar veita:
Jón Finnbogason – framkvæmdastjóri, Stefnir hf.; jon.finnbogason@stefnir.is
Sigurður Viðarsson – framkvæmdastjóri, HILI á Íslandi: sigurdur@hili.is
Eilin Schjetne – forstjóri, HILI Group: eilin@hili.no
Um Stefnir:
Stefnir er eitt stærsta eignastýringarfélag landsins, með u.þ.b. 341 milljarða króna í stýringu. Félagið er í fullri eigu Arion banka, sem er meðal stærstu banka landsins. Stefnir stýrir fjármagni fyrir fjölbreyttan hóp fjárfesta, allt frá einstaklingum til stærstu fagfjárfesta landsins. Fjárfest er í gegnum verðbréfasjóði, sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta, sérhæfða sjóði og hlutafélög.
Um HILI:
HILI gerir fasteignaeigendum kleift að nálgast bundið eigið fé úr fasteignum sínum án þess að selja eignina eða taka lán. Eigendur gera samkomulag um sameign með sjóðnum og losa þar með verðmæti en halda áfram að búa í eigninni. Vettvangurinn tengir saman þá sem óska fjárhagslegs sveigjanleika og fjárfesta sem leita nýrra leiða til að fjárfesta í íbúðamarkaði. HILI starfar nú í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og á Íslandi og áformar frekari útbreiðslu um Evrópu. Sigurður Viðarsson er framkvæmdastjóri HILI á Íslandi, en hann er reyndur stjórnandi með 25 ára reynslu, m.a. sem aðstoðarforstjóri Kviku banka og forstjóri TM tryggingafélags.
Fleiri fréttir
03.júní 2025
Stefnir og HILI hefja samstarf um fyrsta íbúðasjóð Íslands í sameignarformi
Stefnir hf. hefur gert samstarfssamning við HILI með það að markmiði að opna aðgang að nýjum eignaflokki fyrir fjárfesta með því að fjárfesta í vönduðum...
15.apríl 2025
Engin upphafsþóknun eða lágmarkskaup í sjóðum Stefnis
Stefnir hefur fellt niður upphafsþóknun vegna viðskipta í sjóðum félagsins þegar viðskipti eiga sér stað í gegnum Arion appið eða netbanka þar sem ekkert...
30.janúar 2025
Haukur Guðnason ráðinn nýr áhættustjóri hjá Stefni hf.
Haukur Guðnason hefur verið ráðinn nýr áhættustjóri hjá Stefni. Haukur býr yfir fjölþættri reynslu á sviði áhættustýringar og fjármála sem mun styðja við...