Frétt

06. mars 2026

SÍA V fjárfestir í Lava Show

SÍA V fjárfestir í Lava Show

Samkomulag hefur náðst milli meirihluta hluthafa Icelandic Lava Show ehf. og stofnenda félagsins, ásamt SÍA V, framtakssjóði í rekstri Stefnis, um kaup á 95% hlutafjár félagsins. Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Lava Show var stofnað af hjónunum Júlíusi Inga Jónssyni og Ragnhildi Ágústsdóttur. Hugmyndin kviknaði þegar þau urðu vitni að hraunfossi í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi árið 2010. Lava Show er eina sýning sinnar tegundar í heiminum þar sem aðstæður eldgoss eru endurskapaðar með því að hita raunverulegt hraun upp í 1100°C og það látið flæða inn í sýningarsal þar sem áhorfendur upplifa í návígi kraft, fegurð og hita hraunsins. Fyrsta sýning Lava Show opnaði í Vík í Mýrdal árið 2018. Síðar opnaði önnur sýning á Granda í Reykjavík árið 2022, sem nýlega hefur verið stækkuð til muna.

Árangur Lava Show hefur verið eftirtektarverður. Á tæpum átta árum hefur félagið vaxið úr litlu sprotafyrirtæki á landsbyggðinni í einn af áhugaverðari áfangastöðum íslenskrar ferðaþjónustu sem dregur fram eitt helsta sérkenni landsins, eldvirkni Íslands. Á síðasta ári heimsóttu yfir 200.000 gestir sýninguna og hefur hún hlotið fjölda viðurkenninga fyrir nýsköpun og gæði.

„Þetta eru merkileg tímamót fyrir okkur því nú eru akkúrat tíu ár síðan við tókum af skarið og ég sagði upp starfi mínu til að hrinda viðskiptahugmyndinni af stað,“ segir Júlíus. Ragnhildur bætir við: „Þetta hefur verið ótrúlegt ævintýri og það er virkilega gaman að sjá árangur erfiðis síns. Nú tekur við nýr kafli og við erum spennt fyrir framhaldinu”.

Birgir Örn Birgisson, fráfarandi stjórnarformaður og einn seljenda, segir: „Þessi sala er viðurkenning á frábærum rekstri félagsins. Ég vil sérstaklega hrósa stofnendum, stjórnendum og starfsmönnum fyrir frábært starf og þakka jafnframt einstaklega gott samstarf innan stjórnar og við hluthafa. Þetta hefur verið mjög farsæl vegferð sem salan nú endurspeglar og ekki síst vaxandi áhuga sem fjárfestar hafa sýnt félaginu síðustu misseri. Félagið er í góðum höndum og ég vil óska nýjum eigendum til hamingju og góðs gengis.“

Stefnir lauk fjármögnun á framtakssjóðnum SÍA V á síðasta ári. Áskriftir í sjóðinn námu rúmum 15,2 milljörðum króna og eru fjárfestar hans að stærstum hluta stofnanafjárfestar. SÍA V er fimmti sjóðurinn í röð SÍA framtakssjóða sem hófu starfsemi árið 2011 og hafa frá þeim tíma leitt fjárfestingar fyrir um 50 milljarða króna. Frá upphafi hefur SÍA fjárfest í samtals 18 fyrirtækjum og hafa sex þeirra verið skráð í kauphallir hér á landi eða erlendis.

 

Til baka

Fleiri fréttir

06.mars 2026

SÍA V fjárfestir í Lava Show

Samkomulag hefur náðst milli meirihluta hluthafa Icelandic Lava Show ehf. og stofnenda félagsins, ásamt SÍA V, framtakssjóði í rekstri Stefnis, um kaup á 95%...

03.mars 2026

Hálfsársbréf frá framkvæmdastjóra Stefnis til eigenda í sjóðum

Meðfylgjandi er annað hálfsárs-bréf framkvæmdastjóra Stefnis. Þar er farið yfir helstu atriði í rekstri Stefnis, stöðu á verðbréfamörkuðum og hugleiðingar um...

17.desember 2025

Stefnir styður við aukið aðgengi að íbúðum í sameignarformi

Stefnir hefur gert breytingar á sameignarforminu sem sex sjóðir í rekstri fyrirtækisins hafa boðið fasteignarkaupendum í samvinnu við byggingaraðila...