Frétt
Stefnir er framúrskarandi fyrirtæki 2019
Stefnir var valið eitt af framúrskarandi fyrirtækjum á Íslandi samkvæmt greiningu Creditinfo. Stefnir hefur hlotið þessa viðurkenningu frá árinu 2012 og er þetta áttunda árið í röð.
Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtæki að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1, 2 eða 3
- Jákvæð ársniðurstaða síðustu þrjú ár
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár
- Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
- Ársreikningi var skilað til RSK síðustu þrjú ár
- Ársreikningi fyrir síðasta ár skilað á réttum tíma skv. lögum
- Rekstrarhagnaður (EBIT) jákvæður síðustu þrjú ár
- Rekstrartekjur voru a.m.k. 50 milljónir króna síðustu tvö ár
- Eignir voru a.m.k. 100 milljónir síðustu tvö ár og a.m.k. 90 milljónir árið þar áður
Í viðtali við Jökul H. Úlfsson, framkvæmdastjóra Stefnis sem var birt í Viðskiptablaði Morgunblaðsins segir Jökull: ,,Heilbrigð fyrirtækjamenning og traustir innviðir eru lykilatriði í starfsemi sjóðastýringarfyrirtækja. Orðspor Stefnis og traust til félagsins hefur áunnist yfir langan tíma og því þarf stöðugt að viðhalda með þjálfun og fræðslu“.
Hér er hægt að lesa viðtalið.
Fleiri fréttir
20.júní 2025
Stefnir leitar að sérfræðingum í áhugaverð störf
Leitað er að einstaklingum með brennandi áhuga á sjóðastýringu og íslensku atvinnu- og efnahagslífi. Um er að ræða starf sérfræðings í almenn störf innan...
03.júní 2025
Stefnir og HILI hefja samstarf um fyrsta íbúðasjóð Íslands í sameignarformi
Stefnir hf. hefur gert samstarfssamning við HILI með það að markmiði að opna aðgang að nýjum eignaflokki fyrir fjárfesta með því að fjárfesta í vönduðum...
15.apríl 2025
Engin upphafsþóknun eða lágmarkskaup í sjóðum Stefnis
Stefnir hefur fellt niður upphafsþóknun vegna viðskipta í sjóðum félagsins þegar viðskipti eiga sér stað í gegnum Arion appið eða netbanka þar sem ekkert...