Reglur og samþykktir
Regluvarsla
Stefni er skylt að koma á regluvörslu og skal sjá til þess að hún sé skilvirk og óháð öðrum þáttum í starfsemi félagsins. Hlutverk regluvörslu er einkum að tryggja eftirfylgni við lög og reglur á verðbréfamarkaði í rekstri félagsins.Undir ábyrgðarsvið regluvörslu falla m.a. eftirtalin málefni:
- Framkvæmd og eftirlit með stefnu um hagsmunárekstra.
- Framkvæmd og eftirlit með reglum um starfsmannaviðskipti.
- Fræðsla og ráðgjöf til starfsmanna og yfirstjórnar varðandi skyldur félagsins á verðbréfamarkaði.
- Önnur verkefni s.s. skýrslugerð og samskipti við stjórnvöld.
Stefna um hagsmunaárekstra
Stefnir hf. hefur sett sér stefnu um hagsmunaárekstra á grundvelli 22. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóð, 18. gr. laga nr. 116/2021, um verðbréfasjóði, sbr. III. kafli reglugerðar nr. 471/2014, um skipulagskörfur rekstrarfélaga verðbréfasjóða og 32. gr. laga nr. 115/2021, um markaði fyrir fjármálagerninga, að því er varðar aðra þjónustu en rekstur sjóða um sameiginlega fjárfestingu og tengdum stjórnvaldsfyrirmælum.
Það felst í eðli starfsemi Stefnis að ýmsir aðilar kunna að hafa ólíkra hagsmuna að gæta. Slíkt hefur óhjákvæmilega þá hættu í för með sér að hagsmunir eins eða fleiri aðila rekist á. Það er því stefna félagsins að grípa til allra tiltækra ráðstafanna til þess að koma í veg fyrir að hagsmunaárekstrar raungerist og skaði hagsmuni viðskiptavini og sjóðsfélaga. Stefna félagsins um hagsmunaárekstra er lýsir þeim ráðstöfunum sem félagið hefur innleitt til þess að greina, koma í veg fyrir eða takast á við hagsmunaárekstra. Stefnunni er ætlað að vernda viðskiptavini og sjóðfélaga, auk þess að standa vörð um óhæði og orðspor félagsins og starfsmanna þess.
Það er skilyrðislaus krafa að allir fulltrúar Stefnis starfi með hagsmuni viðskiptavina og sjóðfélaga að leiðarljósi og gæti þess að setja ekki hagsmuni eins hóps viðskiptavina ofar
hagsmunum annars. Viðskiptavinir og sjóðfélagar mega treysta því að hagsmunir Stefnis, tengdra aðila, starfsfólks og annarra viðskiptavina hafi ekki skaðleg áhrif á hagsmunagæslu félagsins fyrir þeirra hönd.
Ýmsar aðferðir eru tiltækar til þess að koma í veg fyrir að hagsmunaárekstrar skaði viðskiptavini og sjóðfélaga, og er fulltrúum Stefnis skylt að grípa til þeirra við tilteknar
aðstæður. Ef ráðstafanir félagsins veita ekki fullnægjandi vissu fyrir því að hagsmuna sjóða og sjóðfélaga sé nægilega gætt ber að upplýsa framkvæmdastjóra og regluvörð um það tafarlaust, svo unnt sé að grípa til sértækari ráðstafana. Sjóðfélagar skulu upplýstir á varanlegum miðli um slíkar aðstæður, ásamt rökstuðningi fyrir þeim ráðstöfunum sem ákveðið er að beita. Ágrip þetta tekur á helstu þáttum stefnu félagsins um hagsmunaárekstra.
Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá félaginu.
Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
Fjármálaeftirlitið vistar Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki, sem fjallar um ágreining viðskiptamanna við fjármálafyrirtæki.
- Sjá nánar á vef Fjármálaeftirlitsins
Neytendaþjónusta
Fjármálaeftirlitið starfrækir upplýsinga- og leiðbeiningaþjónustu fyrir viðskiptavini fjármálafyrirtækja.
- Sjá nánar á vef Fjármálaeftirlitsins
Neytendastofa er stjórnvald á sviði neytendamála sem veitir ýmsar upplýsingar um neytendamál.
- Sjá nánar á vef Neytendastofu
Dómstólar
Viðskiptavinir geta borið ágreiningsefni undir dómstóla. Bent er á að Lögmannafélag Íslands býður almenningi ókeypis lögmannsaðstoð.
- Sjá nánar á vef Lögmannafélags Íslands - LMFÍ
Stefna um meðferð kvartana
Stefna um meðferð kvartana er sett til að stuðla að gagnsæju, sanngjörnu og skilvirku verklagi við meðhöndlun kvartana sem berast Stefni hf.
Kvörtun til Stefnis skal almennt sett fram skriflega. Kvartanir óskast sendar með tölvupósti á netfangið kvortun@stefnir.is. Tiltaka skal ástæður kvörtunar og lýsa í meginatriðum því sem kvartað er yfir.
Kvörtun er svarað skriflega með tölvupósti, eigi síðar en fjórum vikum frá móttöku kvörtunar. Sé ekki unnt að leysa úr kvörtun innan þeirra tímamarka er viðskiptavinurinn upplýstur um ástæður þess, ásamt upplýsingum um hvenær svars megi vænta.
Stefnu um meðferð kvartana má nálgast hér.
Persónuverndarstefna
Stefnir hefur sett sér persónuverndarstefnu sem byggir á ákvæðum laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Viðskiptavinir eiga rétt á að fá aðgang að persónuupplýsingum sínum og við ákveðnar aðstæður að láta leiðrétta þær, eyða þeim eða takmarka vinnslu þeirra.
Viðskiptavinir geta beint erindum sínum varðandi framkvæmd laganna til persónuverndarfulltrúa Stefnis með tölvupósti á personuverndarfulltrui@stefnir.is. Þá geta viðskiptavinir lagt fram kvörtun til Persónuverndar.