Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
Sjóðurinn býður upp á að kaupa í öllum þeim félögum sem sögulega greiða arð í einu.
Útgreiðsla arðs er einu sinni á ári.
Að eiga í Stefni - Arðgreiðslusjóði auðveldar gerð á skattskýrslu þar sem ekki þarf að færa inn kaup og sölur í einstökum félögum og færa marga arðmiða.
Auðvelt er að stýra því hvernig arðgreiðslan er greidd til hlutdeildarskírteinishafa.
Stefnir - Arðgreiðslusjóður er ólíkur hefðbundnum hlutabréfasjóðum að því leyti að arður er greiddur til hlutdeildarskírteinishafa. Félögin sem sjóðurinn á í ráðstafa afkomu sinni að einhverju leyti með greiðslu til hluthafa í formi arðgreiðslna. Því fær sjóðurinn greiddan arð sem hann svo skilar til hlutdeildarskírteinishafa á hverju ári.
Sjóðurinn fjárfestir í félögum sem hafa sögulega greitt arð og/eða eru líkleg til að greiða arð innan 12 mánaða. Sjóðurinn tekur fyrst og fremst stöður í hlutabréfum íslenskra hlutafélaga og hlutafélaga með starfsemi á Íslandi, sem skráð eru í NASDAQ OMX Nordic Iceland, First North markaðnum, eða annarri viðurkenndri kauphöll eða markaðstorgi fjármálagerninga.
Upphæð arðgreiðslu er reiknuð með því að deila heildarupphæð arðgreiðslu með heildarfjölda útistandandi hluta, sem gefur arðgreiðslu á hvern hlut. Hlutdeildarskírteinishafar sjóðsins geta þá reiknað hlutdeild sína í arðgreiðslunni með því að margfalda hluti í þeirra eigu við upphæð arðgreiðslu á hlut
Heildarupphæð arðgreiðslu / Heildarfjöldi útistandandi hluta = Arðgreiðsla á hlut
Arðgreiðsla á hlut * Fjöldi hluta í eigi hlutdeildarskírteinishafa = Arðgreiðsla hlutdeildarskírteinishafa
Einnig er hægt að reikna arðgreiðsluna sína út frá arðgreiðsluhlutfalli (e. dividend yield).
Dæmi:
Ef eign í sjóðnum er 1 milljón króna þann 28. júní og arðgreiðsluhlutfall er 5% þá fær hlutdeildarskírteinishafinn greiddar 50.000 kr. í arð.
1.000.000 kr. * 0,05 = 50.000 kr.
Gera þarf ráð fyrir fjármagnstekjuskatti (22%) og myndi því hlutdeildarskírteinishafinn í raun fá greiddar kr. 39.000.
50.000 kr. * (1 - 0,22) = 39.000 kr.
Hagnaður af innlausn hlutdeildarskírteina sjóðsins er skattskyldur á Íslandi og fer um skattskyldu hagnaðar samkvæmt lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og staðgreiðslu samkvæmt lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur. Um frekari skattlagningu getur verið að ræða. Fjármagnstekjuskattur reiknast þegar hlutdeildarskírteini eru seld með hagnaði eða þegar arður er greiddur af hlutdeildarskírteinum. Varðandi aðila búsetta í öðrum löndum en á Íslandi er athygli vakin á að kanna hvort um sé að ræða skattlagningu umfram þá sem er á Íslandi.
Huga ber að, nema ef um skattlausa aðila sé að ræða, s.s. lífeyrissjóði, að kaup í sjóðnum stuttu fyrir arðgreiðsludag sjóðsins (30. júní ár hvert), getur valdið skattgreiðslu við útgreiðslu arðs.
Dæmi: 25. júní er fjárfest fyrir 5.000 kr. sem gefur 50 hlutdeildarskírteini á 100 kr. hvert. Ef sjóðurinn greiðir út uppsafnaðan arð sem nemur 5 kr. á hlut þann 30. júní þá lækkar gengi sjóðsins um 5 kr. og verður 95 kr. á hlut (gefið að engar aðrar markaðsbreytingar verði). Þá áttu núna enn 5.000 kr. (50 hluti á 95 kr. hver = 4.750 kr. auk 250 kr. í lausu fé (50*5 kr. = 250 kr.)) en þú skuldar fjármagnstekjuskatt af 250 kr. Til að koma í veg fyrir ofangreint vinsamlega kynnið ykkur útgreiðsludag arðs sjóðsins áður en fjárfest er.
Arðurinn skal greiddur út þann 30. júní ár hvert, til þeirra hlutdeildarskírteinishafa sem í dagslok þann 28. júní sama ár eiga hlutdeildarskírteini í sjóðnum sem er síðasti dagur sem arður fylgir hlutdeildarskírteinunum. Arðleysisdagur hlutdeildarskírteina sjóðsins er 29. júní ár hvert og hefst þá nýtt tímabil uppsöfnunar arðgreiðslna skv. framangreindu. Reynist 30. júní ekki bankadagur skal arður greiddur út næsta bankadag þar á eftir.
Nei, allir sem eiga hlutdeildarskírteini í Stefnir – Arðgreiðslusjóði dagslok þann 28. júní fá greiddan arð á seinasta degi júnímánaðar eða næsta bankadag þar á eftir reynist síðasti dagur júnímánaðar ekki bankadagur.
Greiddur arður fer inn á vörslusafn hlutdeildarskírteinishafans. Allir þeir sem eru með skráð netfang fá einnig sérstaka kvittun fyrir arðgreiðslunni.
Hlutdeildarskírteinishafi getur svo millifært arðinn inn á reikning í netbanka Arion banka. Þar er valið Verðbréf vinstra megin í veftré, smellt á Staða og neðst í horninu hægra megin niðri er smellt á Beiðni um millifærslu af bankareikningi.
Þessa aðgerð er einnig hægt að framkvæma í Arion banka appinu með því að smella á ISK línuna í verðbréfasafninu og svo Beiðni um millifærslu. Þar er hægt að velja reikning til að millifæra á.
Einnig er hægt að fá arðgreiðslur sjálfkrafa inn á bankareikning. Til að virkja slíkar sjálfvirkar millifærslur í netbanka Arion banka er valið Verðbréf vinstra megin í veftré. Næst þarf að smella á Stillingar hægra megin efst til að velja innleggsreikning undir Sjálfvirkar áframgreiðslur vegna fyrirtækjaaðgerða (arðgreiðslur og afborganir skuldabréfa). Eftir að innleggsreikningur er valinn munu allar arðgreiðslur fara sjálfkrafa inn á reikninginn stuttu eftir að arður er greiddur.
Stefnir - Arðgreiðslusjóður er ólíkur öðrum sjóðum að því leyti að arður er greiddur út til sjóðsfélaga og má í raun skipta ávöxtun fjármagnsins í tvo hluta: Breyting á verði sjóðsins og greiddur arður til hlutdeildarskírteinishafa.
Arðgreiðsluhlutfall varpar ljósi á hver ávöxtun hlutdeildarskírteinishafa af fjárfestingu var í formi arðgreiðslna. Hlutfallið er reiknað sem arður á hlut í hlutfalli við verð hans.
Við útgreiðslu arðs til hlutdeildarskírteinishafa lækkar verð sjóðsins sem um því nemur. Til þess að sjá heildarávöxtun fjármagnsins þarf því að bæta arðgreiðsluhlutfallinu við verðbreytingu sjóðsins.
Í eftirfarandi töflu má sjá ávöxtun sjóðsins á síðustu árum, bæði með og án arðgreiðslna.
2025 | 2024 | 2023 | 2022 | |
Nafnávöxtun | 1,01% | 11,78% | -20,93% | -9,85% |
Nafnávöxtun a.t.t. útgreidds arðs | 5,49% | 17,43% | 3,23% | -4,41% |
Raunávöxtun* | -2,60% | 6,69% | -26,79% | -17,55% |
Raunávöxtun a.t.t. úgreidds arðs | 1,72% | 12,08% | -4,46% | -12,85% |
*Raunávöxtun er nafnávöxtun þegar tekið hefur verið tillit til verðbólgu.