Viðskipti með sjóði
Um sjóði
Yfirlit sjóðaSamanburður sjóðaSérhæfðar fjárfestingarSkráðir fjármálagerningarÁhættaGjöldMeðeignEldri sjóðir
Viðskipti með sjóði
Viðskipti með sjóðiSparnaður barnaFermingarmótframlagSöluaðilarSkattamál sjóðaSpurt og svarað
Sjálfbærni
Ábyrgar fjárfestingarÁrangur og markmiðÓfjárhagslegar upplýsingarStjórnarhættirUpplýsingagjöf
0
Yfirlit sjóða

Úrval sjóða er fjölbreytt og kemur til móts við ólíkar þarfir fólks.

Yfirlit sjóða
Skýrslur
HluthafafundirFjárhagsupplýsingarAtkvæðagreiðslurHálfsársbréf
Fjölmiðlar
FréttirKauphallartilkynningarMarkaðsmál
Gögn
APIPóstlisti
0
Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Stefnis og við sendum þér áhugavert efni reglulega.

Póstlisti
Starfsemi
Um StefniSkipuritStjórnStjórnarhættirGildi StefnisStarfsfólkUmsókn um starf
Reglur og samþykktir
Reglur og samþykktirReglur vegna hagsmunaáekstraRéttarúrræði viðskiptavina
Annað
Lagalegir fyrirvararMarkaðsþreifingarVefkökur
0
Stefnir hf.

Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Yfirlit sjóða

Viðskipti með sjóði

Engin kaupþóknun, ekkert afgreiðslugjald og engin krafa um lágmarkskaup í sjóðum í Arion appinu.

Viðskipti með sjóðiInnskráning í netbanka
Um Stefni

Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Félagið starfar á grundvelli starfsleyfa frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Auk þess tekur starfsleyfi rekstrarfélagsins til eignastýringar, fjárfestingaráðgjafar og vörslu og umsýslu hlutdeildarskírteina eða hluta sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.

Hafðu samband

Opið virka daga 9-16

+354 444 7400

stefnir@stefnir.is

Styttu þér leið
StarfsfólkStjórnSpurt og svaraðFjárhagsupplýsingarReglur og samþykktirPersónuverndaryfirlýsing
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedIn


Stefnir hf.

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 700996 - 2479

Lagalegir fyrirvararStillingar fótspora
Meðeign fjölskylda
  1. Sjóðir
  2. ▸
  3. Um sjóði
  4. ▸
  5. Meðeign

Létt­ari leið að þínu heim­ili

Meðeign auðveldar þér að eignast heimili eða stækka við þig. Sjóður á vegum meðeignarleiðar Stefnis kaupir hluta í eigninni tímabundið með þér.

Þú getur valið um fjölda nýrra íbúða hjá okkar samstarfsaðilum á byggingamarkaðnum.

Aparta Ís­land er okk­ar þjón­ustu­að­ili

Ef þú hefur spurningar bendum við þér á að hafa samband við Aparta Ísland sem er þjónustuaðili Stefnis og sér um samskipti á samningstímanum.

Hafa samband við Aparta Ísland
Meðeign

Fyrir hverja er Meðeign?

  • Þú vilt eignast íbúð en vantar fjármagn til að brúa bilið.

  • Þú ert að stíga þín fyrstu skref inn á fasteignamarkað.

  • Þú vilt sveigjanlegri leið til að fjárfesta í eigin húsnæði.

  • Þú vilt minnka áhættu við fasteignakaup, með því að dreifa óvissu um þróun fasteignaverðs.

  • Þú vilt stækka við þig.

Samstarf skilar árangri

Meðeign er möguleg út af góðu samstarfi Stefnis, Aparta og fjölmargra byggingaraðila. Lausnin byggir á ólíku hlutverki þessara aðila.

Stefnir hf., sem er dótturfélag Arion banka og starfar undir eftirliti Seðlabanka Íslands, stofnar sjóð í formi samlagshlutafélags og annast rekstur sjóðsins. Sjóðurinn kaupir hlut í íbúðinni. Áður en að kaup eiga sér stað er gerður bæði sameignar- og leigusamningur á milli eigenda íbúðarinnar.

Aparta Ísland ehf. annast þjónustu við eigendur íbúðar og sjóðsins á meðan sameignartíma varir. Í því felst meðal annars aðstoð við söluferli íbúða þegar að því kemur og samskipti við eigendur óski þeir eftir því að kaupa hlut í íbúðinni til baka af sjóðnum. Þá geta einnig komið upp viðhaldsmál á fasteigninni sem fjalla þarf um og taka afstöðu til og er sú vinna í höndum Aparta.

Byggingaraðilar sem bjóða upp á meðeignarleiðina gerast í upphafi fjárfestar í sjóðnum og fjármagna þannig kaup sjóðsins á hlut í íbúð. Með þátttöku byggingaraðila þá bæði byggir verktakinn íbúðina og gerist áfram eigandi að hluta hennar með kaupanda. Með þeim hætti sýnir byggingaraðilinn að hann hafi trú á langtímafjárfestingu í íbúðarhúsnæði og stendur þannig með gæðum þeirra fasteigna sem hann hefur byggt. Mikið úrval af eignum stendur til boða víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.

Hvernig virk­ar ferl­ið?

1. Þú vel­ur fast­eign

Stefnir er í samstarfi við ýmsa byggingaraðila sem bjóða upp á fjölbreytt úrval nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu.

Þegar þú hefur fundið íbúð sem hentar þínum þörfum geturðu haft samband við fasteignasölu fyrir frekari upplýsingar.

Kynntu þér úrvalið sem er í boði.

2. Þú ger­ir til­boð

Með aðstoð frá fasteignasölu er gert kauptilboð í eignina. Sjóður gerir tilboð með þér fyrir allt að 25% hlut í eign. Samhliða kauptilboði gera aðilar með sér tvo samninga, sameignarsamning og leigusamning.

Þeir samningar taka á skyldum og réttindum beggja aðila, leigugreiðslum fyrir afnot af eignarhlut sjóðs og öðrum skilmálum. Mikilvægt er að kynna sér samninga vel áður en haldið er áfram í næstu skref.

3. Fjár­mögn­un

Ef tilboð er samþykkt þá tekur við greiðslumat og fjármögnun hjá viðskiptabanka eða lífeyrissjóði, allt eftir því hvað kaupandi velur.

4. Kaup­samn­ing­ur

Þegar greiðslumat er samþykkt og fjármögnun tryggð er farið í gerð kaupsamnings, sem fasteignasala sér um að útbúa.

Kaupsamningur er undirritaður og þú sem kaupandi ert orðinn eigandi á íbúð ásamt sjóðnum. Þú sem kaupandi hefur full yfirráð yfir keyptri eign og greiðir mánaðarlega leigu fyrir hlut sjóðsins.

5. Minni áhætta

Í stað þess að kaupandi fjárfestir í 100% af virði íbúðar, er hægt að kaupa 75-80% hlut gegn 20-25% eignarhlut sjóðs og þannig minnka áhættu um þróun húsnæðisverðs næstu ára.

6. Af­hend­ing og af­sal

Eignin er afhent á umsömdum degi og afsal gefið út þegar allar greiðslur hafa farið fram til byggingaraðila, allt gert í samstarfi við fasteignasölu.

Í kjölfarið nýtur þú þess að búa í nýju heimili með hjálp Stefnir – Meðeign.

Hvað þýðir þetta?

  • Minni skuldsetning í upphafi - Meðeignarleið dregur úr þörf fyrir of mikla skuldsetningu í upphafi.

  • Fullur afnotaréttur – Þú býrð í íbúðinni eins og hún væri alfarið þín. Kaupandi greiðir mánaðarlega húsaleigu af eignarhluta sjóðsins. Húsaleigan tekur mið af markaðsleigu viðkomandi íbúðar væri öll íbúðin til leigu. Leigan er verðtryggð eins og almennt tíðkast með langtíma leigusamninga.

  • Sveigjanleiki – Heimild til að greiða inn á eignarhlut sjóðsins. Ef kaupandi kýs að nýta sér kauprétt þarf að greiða upp að lágmarki 5% í hvert skipti af eignarhlut sjóðsins.

  • Minni áhætta - Kaupandi fjárfestir ekki í 100% virði íbúðar, kaupir frekar 75-80% hlut á móti eignarhluta sjóðs. Kaupandi fjármagnar sinn hlut með að lágmarki 10% eiginfjárframlagi af kaupverði og restin með lánsfé. Kaupandi hefur tök á að fara í hentugt húsnæði fyrir vikið og koma sér jafnvel af leigumarkaði ef svo ber undir. Með kaupum kemst kaupandi inn á fasteignamarkað og nýtur verðbreytinga sem hugsanlega verða á næstu árum.

  • Uppgjör í lok sameignartímabils – Sameignarsamningur er gerður til 10 ára. Viðskiptavinur getur krafist þess að nýta kauprétt sinn hvenær sem er eftir upphafsdag með því að tilkynna það skriflega. Tilkynning þarf að berast eigi síðar en á þeim degi sem er 10 árum eftir upphafsdag.

    Á þessum 10 árum er hægt að óska eftir framlengingu á samningstíma um allt að 5 ár í senn, þannig að hámarks samningstími getur verið samtals 20 ár.

    Ef viðskiptavinur kaupir ekki eignarhlut sjóðsins til baka á samningstímanum eða þegar 10 ár eru liðin og ákveður að óska ekki eftir framlengingu, þá er gert ráð fyrir því að íbúðin verði seld á markaði. Viðskiptavinur á þó forkaupsrétt á eignarhlut sjóðsins.

Bygg­ing­ar­að­il­ar

baughamar

ÞG sjóð­ur

ÞG sjóður fjárfestir í íbúðum sem byggðar eru af ÞG verktökum í Baughamri í Hafnarfirði. Kynntu þér úrval eigna í boði inn á heimasíðu sjóðsins.

Nánari upplýsingar
ashamar

Kaup­lyk­ill

Kauplykill fjárfestir í íbúðum sem eru í eigu Skugga byggingarfélags í Baughamri og Áshamri í Hafnarfirði. Kynntu þér úrval eigna í boði inn á heimasíðu sjóðsins.

Nánari upplýsingar
Reir

REIR20

REIR20 fjárfestir í íbúðum sem eru í eigu REIR Verk í Þorraholti og Stefnisvogi. Kynntu þér úrval eigna í boði inn á heimasíðu sjóðsins.

Nánari upplýsingar
Safir

SAFÍR20

SAFÍR20 fjárfestir í íbúðum sem eru í eigu SAFÍR bygginga á Orkureit í Laugardalnum. Kynntu þér úrval eigna í boði inn á heimasíðu sjóðsins.

Nánari upplýsingar
Öxar

ÖXAR20

Öxar20 fjárfestir í íbúðum sem eru í eigu Öxar byggingafélags á Kleppasmýrarvegi og Grásteinsmýri. Kynntu þér úrval eigna í boði inn á heimasíðu sjóðsins.

Nánari upplýsingar
Umbra

Umbra20

Umbra20 fjárfestir í íbúðum sem eru í eigu Umbra byggingarfélags á Eirhöfða og Víðiholti. Kynntu þér úrval eigna í boði inn á heimasíðu sjóðsins.

Nánari upplýsingar
Skjólfesta

Skjól­festa

Skjólfesta fjárfestir í íbúðum sem eru í eigu Varmárbyggðar í Áshamri í Hafnarfirði. Kynntu þér úrval eigna í boði inn á heimasíðu sjóðsins.

Nánari upplýsingar
fasteignabrú

Fast­eigna­brú

Fasteignabrú fjárfestir í íbúðum sem eru í eigu Fasteignafélagsins G1 á Grensásvegi í Laugardalnum. Kynntu þér úrval eigna í boði inn á heimasíðu sjóðsins.

Nánari upplýsingar
UTS

UTS20

UTS20 fjárfestir í íbúðum sem eru í eigu UTS Fasteigna í Baughamri í Hafnarfirði.

Spurt og svarað

Algengar spurningar (6)
​

Ertu með fleiri spurningar?

Ef þú hefur spurningar bendum við þér á að hafa samband við fasteignasölu byggingaraðila eða Aparta Ísland sem er þjónustuaðili Stefnis og sér um samskipti á samningstímanum. Hægt er að hafa samband við Aparta Ísland í gegnum aparta.is