Að byrja snemma er lykill að góðum árangri
Með reglulegum sparnaði til lengri tíma byggist smám saman upp góður fjárhagslegur grunnur sem kemur barninu til góða seinna meir.

Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
Með reglulegum sparnaði til lengri tíma byggist smám saman upp góður fjárhagslegur grunnur sem kemur barninu til góða seinna meir.

Foreldrar og forráðamenn geta stofnað áskrift í sjóðum fyrir börnin sín í Arion appinu og netbanka með einföldum hætti og þar með lagt góðan grunn að framtíð þeirra.
Fyrsta skrefið er að stofna til verðbréfaviðskipta fyrir barnið, hafi það ekki verið gert áður.
Fermingarbarn og jafnaldrar eiga rétt á mótframlagi ef lagt er inn á Framtíðarreikning/Íbúðasparnað og fjárfest í sjóðum Stefnis fyrir 31. desember 2026.
Ef lagðar eru 30.000 kr. inn á annan hvorn reikninginn fæst 6.000 kr. mótframlag. Einnig fæst 5% af þeirri upphæð sem lögð er inn umfram 30.000 kr. en þó að hámarki 200.000 kr. Það sama gerum við ef keypt er í sjóðum Stefnis.
Því getur mótframlagið verið allt að 32.000 kr. í heildina.
Ef keypt er í sjóðum Stefnis í gegnum Arion appið, netbanka eða með öðrum hætti er mótframlagið greitt innan mánaðar. Mótframlagið er sjálfkrafa lagt inn á sjóðinn ef öllum skilyrðum er fullnægt. Ef keypt er í nokkrum sjóðum dreifist mótframlagið í sjóðina í sömu hlutföllum og keypt var.
Upplýsingar sem birtast á þessari síðu eru markaðsefni í skilningi laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga og fela undir engum kringumstæðum í sér ráðleggingu um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga.
Viðtakendur eru hvattir til að leita sér ráðgjafar og kynna sér undirliggjandi áhættur og réttindi sín áður en ákvörðun um fjárfestingu er tekin.
Í Arion appinu velur þú meira, verðbréf og sjóði. Því næst velur þú viðeigandi sjóð og ef þú vilt eiga í viðskiptum með viðkomandi sjóð, kaupa. Í ferlinu velur þú verðbréfasafn barnsins, skráir upphæð, hakar við að skrá í mánaðarlega áskrift, staðfestir og áskriftin fer í vinnslu.
Í netbankanum velur þú verðbréf, sjóði og áskriftir. Því næst velur þú viðeigandi sjóð og ef þú vilt eiga í viðskiptum með viðkomandi sjóð, skrá áskrift. Því næst skráir þú upphæð og áskriftin fer í vinnslu.
Í Arion appinu velur þú meira, verðbréf og sjóði. Því næst velur þú viðeigandi sjóð og ef þú vilt eiga í viðskiptum með viðkomandi sjóð, kaupa. Í ferlinu velur þú verðbréfasafn barnsins, skráir upphæð, staðfestir og viðskiptin fara í vinnslu.
Verðbréfasafn barnsins birtist í Arion appi og netbanka foreldra eða umboðshafa. Þar er hægt að fylgjast með stöðu og þróun sparnaðarins.
Barnið getur fylgst með þróun sparnaðarins frá 9 ára aldri í gegnum Arion appið og netbanka.
Einstaklingar verða lög- og fjárráða við 18 ára aldur og geta þá átt í verðbréfaviðskiptum sjálfir. Umboð falla niður.
Þeir sem eru með umboð til að stunda verðbréfaviðskipti fyrir hönd barnsins geta innleyst með því að fara í Arion appið, vörslusafnið valið á upphafsskjánum. Þar er smellt á sjóðinn sem selja á í, smellt á Selja, passa þar að velja vörslusafn barnsins, upphæð sett inn og smellt á Áfram, valinn er innleggsreikningur barnsins og smellt á Staðfesta.
Í netbanka er smellt á Verðbréf á valstikunni vinstra megin, hakað er í vörslusafn barnsins, smellt er á Sjóðir, smellt á Selja hnappinn fyrir ofan efsta sjóðinn, þar er smellt á Selja fyrir aftan tiltekinn sjóð, upphæð sett inn, innleggsreikningur barnsins valinn, vörslusafn barnsins, hakað í Ég staðfesti, smellt á Áfram og Skrá pöntun.
Ef þig vantar frekari aðstoð er hægt að hafa samband við Verðbréfaþjónustu Arion í síma 444 7000 eða senda tölvupóst á verdbrefathjonusta@arionbanki.is.
Ef lagðar eru inn 30.000 kr. eða meira í einhvern af sjóðum Stefnis þá leggur Stefnir til 6.000 kr. mótframlag ásamt 5% af þeirri upphæð sem lögð er inn umfram 30.000 kr. en þó að hámarki 200.000 kr.