Við virkjum kraftinn
Tilgangur félaga samstæðunnar er Við virkjum kraftinn og eitt það mikilvægasta sem við gerum er að miðla fjármagni frá þeim sem eiga það og leita að ávöxtun til þeirra sem þurfa fjármagn til að gera hugmyndir sínar og drauma að veruleika. Einnig að tryggja það sem skiptir fólk og fyrirtæki máli og skapa þannig svigrúm og hugrekki til athafna og velsældar. Viðskiptavinir okkar hafa fjölbreytt og ólík markmið sem eru birtingarmynd þess metnaðar og krafts sem í þeim býr. Með því að sinna okkar hlutverki greiðum við fyrir því að hugmyndir verði að veruleika og að sá kraftur sem er allt í kringum okkur virkist.
Þannig felur tilgangurinn í sér trú okkar á það umhverfi sem við störfum í. Trú á að fólk búi yfir krafti, hugmyndum og draumum sem eru þess virði að leggja lið og gera að veruleika, samfélaginu öllu til góða. Við viljum virkja kraft viðskiptavina okkar, kraft efnahagslífsins, kraft kvenna, kraft umhverfisins, kraft samfélagsins alls, kraft okkar sjálfra og svo mætti áfram telja.