Sérhæfðar fjárfestingar

Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Stefnir rekur fjölbreytt úrval sérhæfðra sjóða sem fjárfesta meðal annars í óskráðum íslenskum fyrirtækjum, fasteignum, skuldabréfum og lánasamningum. Sjóðirnir eru eingöngu markaðssettir fyrir fagfjárfesta samkvæmt lögum nr. 45/2020.
Vakin er athygli á því að sérhæfðir sjóðir í rekstri Stefnis eru markaðssettir fyrir fagfjárfesta eins og það hugtak er skilgreint í lögum nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Stefnir íslenskir Athafnasjóðir (SÍA) eru framtakssjóðir í rekstri hjá Stefni. Sjóðirnir fjárfesta að mestum hluta í óskráðum íslenskum fyrirtækjum með því markmiði að hámarka ávöxtun og auka virði félaganna með tilliti til áhættu á hverjum tíma.
Þá hafa sjóðirnir tekið þátt í uppbyggingu skráðs hlutabréfamarkaðar hér á landi, bæði með nýskráningum félaga í eigu sjóðanna í kauphöll og sölu til skráðra fyrirtækja.
SÍA I tók þátt í skráningu bæði Haga á hlutabréfamarkað árið 2012 og Sjóvár árið 2014, en 66N og Jarðboranir voru seldar fjárfestum. Sjóðnum var slitið í kjölfar sölu síðustu eignar sinnar árið 2022.
Stofnár: 2011
Slitið: 2022
Stærð: 3,4 ma.kr.
SÍA II skráði Skeljung á hlutabréfamarkað 2016 og fjárfestingu sjóðsins í Festi lauk með sölu til skráða félagsins N1 árið 2018. Eftir að Verne Global var selt til skráðs erlends innviðasjóðs árið 2021 er Icelandia eina eftirstandandi eign SÍA II.
Stofnár: 2013
Stærð: 7,5 ma.kr.
Sjóðurinn seldi eignarhluti sína í Edition Hótelinu við Austurhöfn til þjóðarsjóðsins ADQ árið 2023, Lyfju til skráða félagsins Festi 2024 og Men and Mice til ameríska félagsins BlueCat 2023. Sjóðurinn á enn meirihluta í iðn- og tækniþjónustu-fyrirtækinu HD og í Terra umhverfisþjónustu.
Stofnár: 2016
Stærð: 12,8 ma.kr.
Sjóðurinn er fjárfestur í fjölbreyttum félögum með starfsemi innanlands og utan, en þau eru Rotovia, Vaxa Technologies, Good Good, Arna og Internet á Íslandi (ISNIC).
Stofnár: 2021
Stærð: 15,9 ma.kr.
Sjóðurinn er opinn fyrir fjárfestingum í fjölbreyttum félögum í íslensku atvinnulífi.
Stofnár: 2025
Stærð: 15,2 ma.kr.
Stefnir rekur fjóra sérhæfða lánasjóði, en sjóðirnir fjárfesta í dreifðu safni skuldabréfa og lánasamninga gefin út á íslensk fyrirtæki. SÍL sjóðirnir gefa út skráð skuldabréf á First North, en hægt er að nálgast upplýsingar um skráninguna í kauphallartilkynningum.
Sjóðurinn ST1 fjárfestir aðeins í fasteignaveðlánum og er svokallaður „evergreen“ sjóður sem þýðir að líftíminn er óskilgreindur í sjóðnum og vaxtatekjum er endurfjárfest.
SÍL I er sérhæfður lánasjóður sem var stofnaður árið 2021. Sjóðurinn fjárfestir í dreifðu safni skuldabréfa og lánasamninga gefin út á íslensk fyrirtæki. Sjóðurinn gaf út skuldabréfið SIL 21 1, sem skráð var á First North.
Stofnár: 2021
Stærð: 8,0 ma.kr.
Líftími: 7 ár
SÍL II er sérhæfður lánasjóður sem var stofnaður árið 2023. Sjóðurinn fjárfestir í dreifðu safni skuldabréfa og lánasamninga gefin út á íslensk fyrirtæki. Sjóðurinn gaf út skuldabréfið SIL 23 1, sem skráð var á First North.
Stofnár: 2023
Stærð: 7,0 ma.kr.
Líftími: 7 ár
SÍL III er sérhæfður lánasjóður sem var stofnaður árið 2025. Sjóðurinn fjárfestir í dreifðu safni skuldabréfa og lánasamninga gefin út á íslensk fyrirtæki. Sjóðurinn gaf út skuldabréfið SIL 35 6, sem skráð var á First North.
Stofnár: 2025
Stærð: 7,0 ma.kr.
Líftími: 10 ár
Sjóðurinn ST1 fjárfestir aðeins í fasteignaveðlánum og er svokallaður „evergreen“ sjóður sem þýðir að líftíminn er óskilgreindur í sjóðnum og vaxtatekjum er endurfjárfest. Sjóðurinn er því ávallt opinn fyrir nýjum fjárfestum.
Stofnár: 2016
Stærð: 23,1 ma.kr.
Líftími: Óskilgreindur
Stefnis hefur um langt skeið rekið framtakssjóði sem sérhæfa sig í fjárfestingum í íslenskum fasteignum. Markmið sjóðanna er að auðvelda stofnanafjárfestum aðkomu að fasteignafjárfestingum, bæði með fjárfestingum í eigin fé og skuldafjármögnun. Sjóðunum SRL, SRE I og II hefur verið slitið samhliða eignasölu eða afhendingu eigna til hluthafa.
Stofnár: 2018
Stærð: 3,9 ma.kr.
Stofnár: 2011
Stærð: 1,6 ma.kr.
Stofnár: 2012
Stærð: 16,4 ma.kr.
Stofnár: 2024
Stærð: 40 ma.kr.





