Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

VAXA Technologies framleiðir örþörunga til matvælaframleiðslu og til klakstöðva með umhverfisvænum hætti. Framleiðslan er á Hellisheiði og nýtir vatn, kolefni og orku frá ON. Félagið var stofnað árið 2016 og er helsta framleiðsluvara þess blátt litarefni, en ýmsar hliðarafurðir verða einnig til við framleiðsluna.
SÍA IV fjárfesti í VAXA árið 2021.

Good Good var stofnað árið 2015 á grunni stevíudropaframleiðslu. Félagið selur matvörur án viðbætts sykurs m.a. sultur, súkkulaðismjör og hnetusmjör. Helsti markaður félagsins er í Bandaríkjunum.
SÍA IV fjárfesti í Good Good árið 2022.

Rotovia á rætur að rekja til ársins 1984 þegar Sæplast hóf rekstur á Dalvík, en er í dag leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á hlutum með hverfissteypuaðferð á alþjóðavísu. Félagið framleiðir og hannar sínar eigin vörur, ásamt því að framleiða ýmsa íhluti fyrir mismunandi geira. Auk þess er félagið leiðandi á íslenskum markaði í framleiðslu á umbúðum fyrir ferskfiskútflutning og einangrun fyrir byggingariðnað úr EPS í gegnum dótturfélag sitt Tempru. Hjá Rotovia starfa um 850 starfsmenn í 11 verksmiðjum í 8 mismunandi löndum.
SÍA IV fjárfesti í Rotovia árið 2022.

Arna er mjólkurvinnsla í Bolungarvík sem sérhæfir sig í að framleiða vandaðar og bragðgóðar laktósafríar mjólkurvörur úr kúamjólk frá vestfirskum bændum. Félagið var stofnað árið 2013 af Hálfdáni Óskarssyni til að mæta eftirspurn eftir ferskum laktósafríum mjólkurvörum og hefur vöruúrval Örnu vaxið jafnt og þétt síðan.
SÍA IV fjárfesti í Örnu í september 2024.

Internet á Íslandi hf. (ISNIC) er skráningarstofa landshöfuðlénsins .is og sinnir rekstri þess auk þess að reka miðlæga internettengipunktinn RIX. ISNIC hefur skráð .is lén frá árinu 1988 og eru skráð .is lén í dag yfir 99 þúsund talsins, en rétthafar lénanna eru bæði innlendir og erlendir aðilar.
SÍA IV fjárfesti í ISNIC á árinu 2025.