Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
Stefnir gefur út ófjárhagslegar upplýsingar í sjálfbærniskýrslu sinni í fjórða skiptið árið 2024 og vill með því hvetja aðra til að gera hið sama og stuðla að gagnsærri upplýsingagjöf varðandi þá mikilvægu þætti sem umhverfi, félagslegir þættir og stjórnarhættir eru í starfsemi félagsins. Stefnir vinnur skráningu ófjárhagslegra upplýsinga eftir UFS viðmiðum NASDAQ.
Stefnir fær upplýsingar vegna umhverfisþátta frá KPMG en þeir eru reiknaðar miðað við hlutfall starfsfólks í lok árs innan höfuðstöðva Arion banka þar sem Stefnir er til húsa.
Við útreikning á umfangi 3 voru notuð gögn um flugferðir, leigubílaferðir og samgöngur starfsmanna ásamt úrgangi og gagnaeyðslu starfstöðvarinnar. Gögn sem snúa að mannauði koma m.a. úr mannauðskerfi móðurfélags Stefnis og gögn sem snúa að stjórnarháttum byggja á stjórnarháttayfirlýsingu Stefnis. Ófjárhagslegar upplýsingar hafa verið endurskoðaðar og staðfestar með takmarkaðri vissu af endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte.
Á árinu 2025 var tekinn saman fjármagnaður útblástur gróðurhúsalofttegunda frá eignum sjóða í rekstri Stefnis og birt við því tengt skýrslu þar sem koma fram meðal annars upplýsingar um losunarstyrk fjárfestingar fyrir hverja 1 m.kr. fjárfesta í tilteknum sjóðum. Aðferðafræðin sem notuð er við útreikninginn byggir á aðferðafræði Partnership for Carbon Accounting Financials (PCAF), alþjóðlegs samstarfsvettvangs fjármálafyrirtækja sem hefur það meginmarkmið að samræma mat á umfangi losunar gróðurhúsalofttegunda.
Katla Fund Global Equity, erlendur sjóður í stýringu Stefnis, var skilgreindur samkvæmt grein 8 (Article 8) í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu (e. SFDR) árið 2022. Fleiri sjóðir bættust í hóp 8.gr. sjóða Stefnis í upphafi árs 2024 en sjóðirnir Stefnir - Scandinavian Fund - ESG, Stefnir – Sjálfbær skuldabréf, Stefnir – Grænaval og Stefnir Sustainable Artic Fund upplýsa nú með hvaða hætti er tekið er tillit til áhrifa á sjálfbærni í fjárfestingarákvörðunum sínum og vonast er til að breytingarnar falli vel að óskum viðskiptavina Stefnis.
Stefnir – Scandinavian Fund ESG hefur hlotið AAA-einkunn MSCI, þá hæstu sem veitt er og er hann fyrstur íslenskra sjóða til að hljóta þessa einkunn. Sjóðurinn er þar með kominn í flokk með fremstu sjóðum í heiminum með tilliti til UFS þátta. Í greiningu MSCI kemur fram að „Stefnir – Scandinavian Fund ESG“ mælist ofar en 99% sjóða sem MSCI veitir einkunn, en þeir eru um 34 þúsund talsins á heimsvísu.
Stefna um sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð var samþykkt af stjórn í upphafi árs 2022. Stefnan lýsir sjálfbærniáherslum Stefnis til lengri tíma og hvernig félagið tileinkar sér sjálfbærni í starfsemi sinni og við stýringu fjármuna samkvæmt umboðsskyldu félagsins. Stefnuna má finna á heimasíðu Stefnis.
Félagið hefur einnig sett sér stefnu um ábyrgar fjárfestingar. Stefnan miðar að því að stýra fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi út frá umhverfisþáttum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum.
G2. Óhæði stjórnar: Óháðir stjórnarmenn voru tveir á móti einum háðum stjórnarmanni á árinu 2024.
G5. Siðareglur birgja: Allir birgjar skulu upplýstir um siðareglur birgja umfram ákveðin fjárhæðarmörk.
G6. Siðferði og aðgerðir gegn spillingu: Stjórn samþykkti siðareglur árið 2022 sem endurspegla þau siðferðisviðmið sem stjórn og starfsmenn vinna eftir en önnur viðmið um sama efni má einnig finna í ráðningasamningum starfsfólks, stefnu um hagsmunaárekstra og starfsreglum stjórnar. Stjórn samþykkti einnig stefnu um baráttu gegn fjármunabrotum árið 2024.
G7. Persónuvernd: Stefnir hefur sett sér stefnu um persónuvernd sem sjá má á heimasíðu félagsins.
S4. Kynjafjölbreytni: Hlutfall kvenna í störfum í efsta starfsmannalagi var 33% á árinu 2024 en innan fyrirtækisins var hlutfall kvenna 37%. Markmið stjórnar um aukna fjölbreytni sem sett er fram í stefnu félagsins um fjölbreytileika, jafnrétti og þátttöku lýtur að því hlutfall kvenna meðal starfsfólks félagsins yrði 40% í lok árs 2024. Það markmið náðist ekki í lok árs en bæði vitund og vilji stjórnenda stendur til þess að fjölbreyttur hópur einstaklinga starfi hjá félaginu sem endurspeglar það samfélag og þá viðskiptavini sem við jónustum. Markmið um kynjafjölbreytni verður endurskoðað samhliða endurskoðun fyrrnefndrar stefnu á árinu 2025
Samþykkt af stjórn Stefnis
19. febrúar 2025
Umhverfi | 2025 | 2024 | 2023 | 2022 | 2021 |
E1. Losun gróðurhúsalofttegunda | |||||
Heildarlosun – staðbundin (tCO₂ ígildi) | 17,3 | 16,3 | 22,0 | 10,6 | 6,2 |
Heildarlosun – markaðslosun (tCO₂ ígildi) | 17,1 | 16,0 | |||
Losun frá umfangi 1 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Losun frá umfangi 2 – staðbundin | 1,1 | 1,0 | 0,5 | 1,53 | 1,5 |
Losun frá umfangi 2 – markaðslosun | 0,8 | 0,7 | |||
Losun frá umfangi 3 | 16,2 | 15,3 | 21,5 | 9,07 | 4,7 |
Kolefnisspor með mótvægisaðgerðum | 17,1 | 16,3 | |||
E2. Losunarkræfni gróðurhúsalofttegunda | |||||
Losunarkræfni orku (kgCO₂í/MWst) | 119,46 | 139,08 | 150,27 | 64,43 | 37,49 |
Losunarkræfni heildareigna (tCO₂í/milljarður ISK) | 4,71 | 4,11 | 5,53 | 2,6 | 1,9 |
Losunarkræfni starfsfólks (tCO₂í/fjöldi) | 0,78 | 0,82 | 0,92 | 0,46 | 0,3 |
E3. Orkunotkun | |||||
Heildarorkunotkun (kWst) | 142.861 | 117.206 | 146.147 | 164.447 | 165.505 |
Orka frá rafmagni | 37.012 | 41.948 | 47.119 | 44.735 | 41.663 |
Orka frá heitu vatni | 105.849 | 75.258 | 99.028 | 119.712 | 123.842 |
E4. Orkukræfni | |||||
Orkukræfni starfsmanna (kWst/stöðugildi) | 6.494 | 5.860 | 6.089 | 7.150 | 7.881 |
Orkukræfni heildareigna (kWst/milljarður ISK) | 39.464 | 29.565 | 36.711 | 39.789 | 51.113 |
E5. Samsetning orku | |||||
Endurnýjanleg orka (%) | 100 | 100 | 100 | 100 | 100 |
E6. Vatnsnotkun | |||||
Heildar vatnsnotkun (m³) | 3029 | 2.736 | 3.871 | 3.698 | 3.161 |
E7. Umhverfisstarfsemi | |||||
Formleg umhverfisstefna? (Já/Nei) | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei |
Stefna um úrgang/vatn/orku/endurvinnslu? | Já | Já | Já | Já | Já |
Viðurkennt orkustjórnunarkerfi? | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei |
E8. Loftslagseftirlit / stjórn | |||||
Eftirlit/stjórnun loftslagstengdrar áhættu? | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei |
E9. Loftslagseftirlit / stjórnendur | |||||
Eftirlit/stjórnun loftslagstengdrar áhættu? | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei |
E10. Mildun loftslagsáhættu | |||||
Árleg fjárfesting í loftslagstengdum innviðum, seiglu og vöruþróun |
Félagslegir þættir | 2025 | 2024 | 2023 | 2022 | 2021 |
S1. Launahlutfall forstjóra | |||||
Hlutfall heildarlaunagreiðslu forstjóra og miðgildis heildarlaunagreiðslna starfsmanna í fullu starfi | 2,15 | 1,80 | 1,78 | 2,14 | 1,77 |
Er þetta hlutfall sett fram í skýrslugjöf til yfirvalda? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Já |
S2. Launamunur kynja | |||||
Hlutfall miðgildis launagreiðslna karla og miðgildis launagreiðslna kvenna | 1,64 | 1,10 | 1,47 | 1,83 | 1,003 |
S3. Starfsmannavelta | |||||
Árleg breyting starfsmanna í fullu starfi (%) | 14,6 | 22,7 | 18,2 | 26,1 | 5 |
Árleg breyting starfsmanna í hlutastarfi (%) | 4,9 | 9,1 | 9 | 4,3 | 5 |
Árleg breyting verktaka og/eða ráðgjafa (%) | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
S4. Kynjafjölbreytni | |||||
Hlutfall kvenna innan fyrirtækis í fullu starfi (%) | 43 | 37 | 29 | 32 | 30 |
Hlutfall kvenna í byrjunarstörfum og næsta starfsmannalagi fyrir ofan (%) | 35 | 35 | 29 | 29 | 35 |
Hlutfall kvenna í störfum í efsta starfsmannalagi og sem framkvæmdastjórar (%) | 33 | 33 | 33 | 40 | 40 |
S5. Hlutfall tímabundinna starfskrafta | |||||
Starfsmenn í hlutastarfi (%) | 0 | 5 | 8 | 10 | 10 |
Prósenta þeirra sem eru í verktöku og/eða ráðgjöf | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
S6. Aðgerðir gegn mismunun | |||||
Fylgir fyrirtækið stefnu er varðar kynferðislegt áreiti og/eða jafnrétti? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Nei |
S7. Vinnuslysatíðni | |||||
Tíðni slysatengdra atvika miðað við heildartíma vinnuaflsins (%) | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
S8. Hnattræn heilsa og öryggi | |||||
Fylgir fyrirtækið starfstengdri heilsustefnu og/eða hnattrænni stefnu um heilsu og öryggi? (Já/Nei) | Já | Já | Nei | Nei | Nei |
S9. Barna- og nauðungarvinna | |||||
Fylgir fyrirtækið stefnu gegn barna- og/eða nauðungarvinnu? (Já/Nei) | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei |
Nær stefnan einnig til birgja og seljenda? (Já/Nei) | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei |
S10. Mannréttindi | |||||
Fylgir fyrirtækið mannréttindastefnu? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Nei | Nei |
Nær mannréttindastefnan einnig til birgja og seljenda? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Nei | Nei |
Stjórnarhættir | 2025 | 2024 | 2023 | 2022 | 2021 |
G1. Kynjahlutfall í stjórn | |||||
Hlutfall kvenna í stjórn (%) | 67 | 67 | 67 | 67 | 67 |
Hlutfall kvenna í formennsku nefnda (%) | 0 | 100 | 100 | 100 | 100 |
G2. Óhæði stjórnar | |||||
Bannar fyrirtækið forstjóra að sinna stjórnarformennsku? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Já |
Hlutfall óháðra stjórnarmanna (%) | 67 | 67 | 67 | 67 | 67 |
G3. Kaupaukar | |||||
Fá framkvæmdastjórar formlegan kaupauka fyrir árangur á sviði sjálfbærni? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Nei |
G4. Kjarasamningar | |||||
Hlutfall starfsmanna sem fellur undir almenna kjarasamninga (%) | 100 | 100 | 100 | 100 | 100 |
G5. Siðareglur birgja | |||||
Ber seljendum eða birgjum að fylgja siðareglum? (Já/Nei) | Nei | Já | Já | Já | Já |
Hlutfall birgja sem hafa formlega vottað fylgni við siðareglur (%) | 100 | ||||
G6. Siðferði og aðgerðir gegn spillingu | |||||
Fylgir fyrirtækið stefnu um siðferði og/eða aðgerðir gegn spillingu? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Já |
Hlutfall vinnuafls sem hefur vottað fylgni við stefnuna (%) | 100 | 100 | 100 | 100 | 100 |
G7. Persónuvernd | |||||
Fylgir fyrirtækið stefnu um persónuvernd? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Já |
Hefur fyrirtækið hafist handa við að fylgja GDPR reglum? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Já |
G8. Sjálfbærniskýrsla | |||||
Gefur fyrirtækið út sjálfbærniskýrslu? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Já |
Eru gögn um sjálfbærni í skýrslugjöf til yfirvalda? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Já |
G9. Starfsvenjur við upplýsingagjöf | |||||
Veitir fyrirtækið sjálfbærniupplýsingar til viðurkenndra aðila með skipulögðum hætti? (Já/Nei) | Nei | Nei | Nei | Nei | Já |
Leggur fyrirtækið áherslu á tiltekin heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (UN SDGs)? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Nei |
Setur fyrirtækið markmið og gefur skýrslu um framvindu heimsmarkmiða SÞ? (Já/Nei) | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei |
G10. Gögn tekin út/sannreynd af ytri aðila | |||||
Er upplýsingagjöf um sjálfbærni tekin út eða sannreynd af þriðja aðila? (Já/Nei) | Já | Já | Já | Já | Já |