Viðskipti með sjóði
Um sjóði
Yfirlit sjóðaSamanburður sjóðaSérhæfðar fjárfestingarSkráðir fjármálagerningarÁhættaGjöldMeðeignEldri sjóðir
Viðskipti með sjóði
Viðskipti með sjóðiSparnaður barnaFermingarmótframlagSöluaðilarSkattamál sjóðaSpurt og svarað
Sjálfbærni
Ábyrgar fjárfestingarÁrangur og markmiðÓfjárhagslegar upplýsingarStjórnarhættirUpplýsingagjöf
0
Yfirlit sjóða

Úrval sjóða er fjölbreytt og kemur til móts við ólíkar þarfir fólks.

Yfirlit sjóða
Skýrslur
HluthafafundirFjárhagsupplýsingarAtkvæðagreiðslurHálfsársbréf
Fjölmiðlar
FréttirKauphallartilkynningarMarkaðsmál
Gögn
APIPóstlisti
0
Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Stefnis og við sendum þér áhugavert efni reglulega.

Póstlisti
Starfsemi
Um StefniSkipuritStjórnStjórnarhættirGildi StefnisStarfsfólkUmsókn um starf
Reglur og samþykktir
Reglur og samþykktirReglur vegna hagsmunaáekstraRéttarúrræði viðskiptavina
Annað
Lagalegir fyrirvararMarkaðsþreifingarVefkökur
0
Stefnir hf.

Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Yfirlit sjóða

Viðskipti með sjóði

Engin kaupþóknun, ekkert afgreiðslugjald og engin krafa um lágmarkskaup í sjóðum í Arion appinu.

Viðskipti með sjóðiInnskráning í netbanka
Um Stefni

Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Félagið starfar á grundvelli starfsleyfa frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Auk þess tekur starfsleyfi rekstrarfélagsins til eignastýringar, fjárfestingaráðgjafar og vörslu og umsýslu hlutdeildarskírteina eða hluta sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.

Hafðu samband

Opið virka daga 9-16

+354 444 7400

stefnir@stefnir.is

Styttu þér leið
StarfsfólkStjórnSpurt og svaraðFjárhagsupplýsingarReglur og samþykktirPersónuverndaryfirlýsing
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedIn


Stefnir hf.

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 700996 - 2479

Lagalegir fyrirvararStillingar fótspora
  1. Sjóðir
  2. ▸
  3. Sjálfbærni
  4. ▸
  5. Ábyrgar fjárfestingar

Stefn­ir þú að betri fram­tíð?

Næstu skref sem þú tekur í sparnaði geta haft áhrif á framtíðina. Stefnir býður upp á sjóði með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.

Large-Rax - Stefnir C1A9012 (1)

Ábyrg­ar fjár­fest­ing­ar

Hlutverk Stefnis hf. er að stýra fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi til skemmri og lengri tíma. Félagið hefur lagt áherslu á þróun nýrra sjóða og fjárfestingarkosta á síðastliðnum áratug og hefur markvisst unnið að innleiðingu góðra stjórnarhátta og UFS (e. ESG) stefnu.

Ábyrgir, fjölbreyttir fjárfestingakostir og ítarleg upplýsingagjöf eru lykilatriði í framkvæmd og sýnileika þeirrar samfélagslegu ábyrgðar sem Stefnir vill sýna. Með því að taka tillit til umhverfismála, félagslegra þátta og góðra stjórnarhátta telur félagið sig geta haft jákvæð áhrif á samfélag okkar, eigendum í sjóðum og öðrum haghöfum til góðs.

Rík áhersla er á fagleg og öguð vinnubrögð innan félagsins.

Stefna um ábyrgar fjárfestingar
Lítill lækur upp í fjöllum

Sjóð­ir

Katla Fund - Global Equity

Katla fund er erlendur hlutabréfasjóður og jafnframt stærsti sjóður Stefnis. Lögð er áhersla á að fjárfesta í traustum rekstrarfélögum sem standa frammi fyrir umfangsmiklum tækifærum til innri vaxtar.

Stöðugt er fylgst með bindandi þáttum fjárfestingarstefnunnar, sem stýra vali fjárfestinga til að ná þeim umhverfis- eða félagslegu einkennum sem þessi sjóður stuðlar að.

Nánar um Katla Fund - Global Equity

Stefn­ir - Græna­val hs.

Blandaður sjóður sem fjárfestir einkum í innlendum og erlendum sjóðum, hlutabréfum og skuldabréfum með það að markmiði skila sjálfbærri ávöxtun til langs tíma.

Nánar um Stefnir - Grænaval hs.

Stefn­ir - Scandi­navi­an Fund - ESG hs.

Erlendur hlutabréfasjóður sem tekur mið af umhverfislegum og félagslegum þáttum og stjórnarháttum (UFS) við fjárfestingarákvarðanir með það að markmiði að draga úr áhættu og skila sjálfbærri ávöxtun til lengri tíma.

Sérstakt UFS áhættumat er unnið á öllum eignum og fjárfestingarkostum af fjárfestingarteymi sjóðsins og óháðum utanaðkomandi þriðja aðila. Sjóðnum er stýrt skv. þematískri aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga.

Nánar um Stefnir - Scandinavian Fund - ESG hs.

Stefn­ir - Sjálf­bær skulda­bréf hs.

Skuldabréfasjóður sem leitast eftir ávöxtun í safni skuldabréfa, innlendra sem erlendra, með sjálfbærni að markmiði.

Nánar um Stefnir - Sjálfbær skuldabréf hs.

Stefn­ir - Sustaina­ble Arctic Fund hs.

Erlendur hlutabréfasjóðir þar sem markmið sjóðsins er að fjárfesta einkum í skráðum hlutabréfum hlutafélaga sem starfa eða hafa starfsemi á norðurslóðum.

Fjárfest er samkvæmt stefnu Stefnis hf. um ábyrgar fjárfestingar, við fjárfestingar mun sjóðurinn meta umhverfislega þætti, félagslega þætti og stjórnarhætti. (e. Environmental, Social and Governance).

Nánar um Stefnir - Sustainable Arctic Fund hs.

Aðferðafræði

Stefnir hefur á síðustu árum stigið mikilvæg skref í því að innleiða aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga. Við erum aðilar að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (UN PRI) og stofnaðili Iceland SIF, vettvangs til að efla þekkingu og auka umræður um ábyrgar fjárfestingar.

Nánar um aðferðafræði

UN PRI

Stefnir er aðili að PRI, reglum um ábyrgar fjárfestingar. Reglurnar voru þróaðar af alþjóðlegum hópi stofnanafjárfesta og endurspegla þær mikilvægi umhverfisþátta, samfélagsþátta og stjórnarhátta í fjárfestingarferli fjárfesta. Aðalritari sameinuðu þjóðanna stóð fyrir samantekt reglnanna.

UN PRI
Large-Rax - Stefnir L1870257

Ár­ang­ur og markmið

Fjármagn er mikilvægt hreyfiafl í mótun atvinnulífs og atvinnusköpunar. Ákvarðanir sem teknar eru í dag munu hafa mikil áhrif á framþróun samfélagsins til næstu ára og því mikilvægt að þær séu teknar með sjálfbærni að leiðarljósi. Með því að nýta fjármagn með markvissum aðgerðum er hægt að viðhalda sjálfbærri þróun og á sama tíma að efla samkeppnishæfni þjóða og framtíð komandi kynslóða.

Skoða nánar árangur og markmið

Fyrirvari vegna markaðsefnis

Upplýsingar sem birtast á þessari síðu eru markaðsefni í skilningi laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga og fela undir engum kringumstæðum í sér ráðleggingu um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga.

Viðtakendur eru hvattir til að leita sér ráðgjafar og kynna sér undirliggjandi áhættur og réttindi sín áður en ákvörðun um fjárfestingu er tekin.

Lagalegir fyrirvarar