Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
Athugið að þetta er ekki bindandi samningur heldur markaðsefni. Vinsamlega skoðaðu útboðslýsingu verðbréfasjóðsins og lykilupplýsingar og byggðu ekki endanlega fjárfestingarákvörðun eingöngu á þessum upplýsingum.
Sjóðurinn fjárfestir í fyrirtækjum sem starfa á norðurslóðum með áherslu á sjálfbærni. Hann hentar fjárfestum sem vilja fjárfesta í sjálfbærum félögum sem mæta UFS kröfum og eru tilbúnir að taka á sig áhættu í meðallagi. Ráðlagður lágmarkstími fjárfestingar er sjö ár.
Markmið sjóðsins er að fjárfesta einkum í skráðum hlutabréfum hlutafélaga sem starfa eða hafa starfsemi á norðurslóðum. Með norðurslóðum er átt við þau lönd sem eru aðilar að Norðurskautsráði (e. Arctic Council) en þau eru nú, Danmörk, Grænland, Færeyjar, Finnland, Noregur, Svíþjóð, Ísland, Bandaríkin, Kanada og Rússland.
Markmið sjóðsins er ekki að endurspegla ákveðna vísitölu. Fjárfest er samkvæmt stefnu Stefnis hf. um ábyrgar fjárfestingar, við fjárfestingar mun sjóðurinn meta umhverfislega þætti, félagslega þætti og stjórnarhætti (e. Environmental, Social and Governance).
Lágmark | Hámark | |
|---|---|---|
Hlutabréf sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamörkuðum | 80% | 100% |
Skuldabréf sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamörkuðum | 0% | 20% |
Innlán fjármálafyrirtækja | 0% | 10% |
Erlendir peningamarkaðssjóðir | 0% | 10% |
Afleiður vegna stöðutöku | 0% | 25% |
Aðrir fjármálagerningar en getið er hér fyrir ofan | 0% | 10% |
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að áhætta af fjárfestingu eykst ef hún er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna sveiflna í ávöxtun. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.
Sérhver fjárfestir er hvattur til að framkvæma eigin athuganir og greiningar, m.a. kynna sér viðeigandi upplýsingaskjöl og leggja sjálfstætt mat á slík skjöl áður en ákvörðun er tekin um tiltekna fjárfestingu. Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu Stefnis þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.
Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem Stefnir telur áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Stefnir ber enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.