Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
Á árinu 2020 tók Stefnir þátt í að undirrita viljayfirlýsingu um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar. Fjármagn er mikilvægt hreyfiafl í mótun atvinnulífs og atvinnusköpunar. Ákvarðanir sem teknar eru í dag munu hafa mikil áhrif á framþróun samfélagsins til næstu ára og því mikilvægt að þær séu teknar með sjálfbærni að leiðarljósi. Með því að nýta fjármagn með markvissum aðgerðum er hægt að viðhalda sjálfbærri þróun og á sama tíma að efla samkeppnishæfni þjóða og framtíð komandi kynslóða.
Stefnir stofnaði þrjá sjóði sem taka sérstaklega mið af sjálfbærni á árinu 2021 og félagið hefur verið leiðandi í framboði á sjóðum á sviði ábyrgra fjárfestinga (UFS-sjóðum). Sjóðirnir eru „Stefnir -Scandinavian Fund - ESG“, „Stefnir – Sjálfbær skuldabréf“ og „Stefnir – Grænaval“. Stefnir – Scandinavian Fund ESG hefur hlotið AAA-einkunn MSCI, þá hæstu sem veitt er og er hann fyrstur íslenskra sjóða til að hljóta þessa einkunn. Sjóðurinn er þar með kominn í flokk með fremstu sjóðum í heiminum með tilliti til UFS þátta.
Hjá Stefni starfar UFS ráð en það vinnur samkvæmt starfsreglum settum af framkvæmdastjóra, veitir stuðning við samval fjárfestinga og fullvissu um að unnið sé samkvæmt þeim viðmiðum um ábyrgar fjárfestingar sem sett eru í starfsemi Stefnis. Starfsmenn Stefnis, sem eiga sæti í UFS ráði, eru kyndilberar innleiðingar aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga í alla starfsemi Stefnis. Stjórn og starfsmenn Stefnis geta tekið námskeið hjá PRI Academy í aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga. PRI Academy er helsti fræðsluvettvangur fyrir þá sem vilja öðlast skilning á því hvernig umhverfismál, félagslegir þættir og góðir stjórnarhættir hafa áhrif á frammistöðu fyrirtækja og auka virði allra haghafa.
Stefnir hefur, í samstarfi við Kolvið, kolefnisjafnað rekstur sinn frá árinu 2020.

Heimsmarkmiðin mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Stefnir leggur áherslu á eftirfarandi heimsmarkið Sameinuðu þjóðanna í sinni starfsemi:
Markmið 5: Jafnrétti kynjanna
Markmið 8: Góð atvinna og hagvöxtur
Markmið 10: Aukinn jöfnuður
Markmið 12: Ábyrg neysla og framleiðsla
Markmið 13: Aðgerðir í loftslagsmálum
Markmið 17: Samvinna um markmiðin

Sjálfbærnimarkmið | Undirmarkmið | Heimsmarkmið |
|---|---|---|
Meta sjálfbærniáhættu | Áhættunefnd skilgreini áhrif loftslagsmála á félagið og hvernig er hægt að koma í veg fyrir þau. | Samvinna um markmiðin |
Kolefnishlutleysi í rekstri Stefnis | Draga úr losun kolefnis og annarra gróðurhúsalofttegunda sem hlýst af eigin starfsemi um a.m.k. 55% fyrir árið 2030 miðað við árið 2015. | Aðgerðir í loftslagsmálum |
Meta kolefnisspor sjóða | Kolefnisfótspor allra sjóða metið skv. PCAF aðferðinni. | Aðgerðir í loftslagsmálum |
Fjölbreytileiki, jafnrétti og þátttaka | Fræða starfsmenn og aðra haghafa um mikilvægi fjölbreytileika, jafnréttis og þátttöku á vinnustaðnum. Jöfn tækifæri og jöfn laun fyrir sömu vinnu. | Aukinn jöfnuður |
Ófjárhagslegum markmiðum og mælikvörðum sem hafa verið ákveðin af stjórn og stjórnendum Stefnis er reglulega fylgt eftir og niðurstöður eru birtar í sjálfbærniskýrslu árlega. Stefnir mun halda áfram að betrumbæta hvernig megináhætta sjálfbærniþátta er skilgreind og innleidd í starfsemina. Loftslagáhætta er tvískipt, raunáhætta og umbreytingaráhætta, en henni fylgir einnig orðsporsáhætta og lagaleg áhætta. Áhætta vegna loftlagsmála getur komið í veg fyrir að Stefnir nái markmiðum sínum, en loftslagbreytingar og ferli til að sporna við þeim munu koma til með að hafa umtalsverð áhrif á efnahagslíf og þar af leiðandi á virði fjárfestinga.

Stefnir er aðili að PRI, reglum um ábyrgar fjárfestingar. Reglurnar voru þróaðar af alþjóðlegum hópi stofnanafjárfesta og endurspegla mikilvægi umhverfis-, félags- og stjórnarhátta í fjárfestingarferli. Framvinduskýrslu Stefnis til PRI er skilað árlega og nýjustu skýrslu má finna hér.
Stefnir tók þátt í að undirrita viljayfirlýsingu um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar. Forsætisráðuneytið, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) og Landssamtök lífeyrissjóða (LL) unnu að mótun yfirlýsingarinnar í samráði við helstu aðila á fjármálamarkaði.
Stefnir er stofnaðili IcelandSIF, vettvangs til að efla þekkingu og auka umræður um ábyrgar fjárfestingar. Kristbjörg M. Kristinsdóttir, fjármálastjóri Stefnis, er fyrrum stjórnarformaður IcelandSIF og Iðunn Hafsteinsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni, er meðlimur fræðsluhóps IcelandSIF.
Stefnir hefur gert samning við SoGreen um kaup á kolefniseiningum sem tryggja stúlkum í lágtekjuríkjum menntun.
UFS viðmið Nasdaq á Norðurlöndunum snúa að upplýsingagjöf um starfsemi og áhrif skráðra fyrirtækja út frá umhverfis-, félags- og stjórnarháttum. Sjá UFS-upplýsingar í samantekt á ófjárhagslegum upplýsingum.
Stefnir stýrir fjármunum fyrir hönd viðskiptavina sinna og leggur ríka áherslu á að gera það með ábyrgum og gagnsæjum hætti. Nýlega var tekinn saman fjármagnaður útblástur gróðurhúsalofttegunda frá eignum sjóða í rekstri Stefnis og birtum við því tengt skýrslu þar sem koma fram meðal annars upplýsingar um losunarstyrk fjárfestingar fyrir hverja 1. mkr. fjárfesta í tilteknum sjóðum.
Aðferðafræðin sem notuð er við útreikninginn byggir á aðferðafræði Partnership for Carbon Accounting Financials (PCAF), alþjóðlegs samstarfsvettvangs fjármálafyrirtækja sem hefur það meginmarkmið að samræma mat á umfangi losunar gróðurhúsalofttegunda. Upplýsingarnar byggja á punktstöðu eigna sjóða þann 31.12.2024.

Fjárhagsupplýsingar Stefnis má finna hér.
Stefna um sjálfbærni og samfélagsábyrgð