Mínar síður
Um sjóði
Yfirlit sjóðaSamanburður sjóðaSérhæfðar fjárfestingarSkráðir fjármálagerningarÁhættaGjöldMeðeignEldri sjóðir
Viðskipti með sjóði
Viðskipti með sjóðiSparnaður barnaFermingarmótframlagSöluaðilarSkattamál sjóðaSpurt og svarað
Sjálfbærni
Ábyrgar fjárfestingarAð­ferðafræðiÁrangur og markmiðÓfjárhagslegar upplýsingarStjórnarhættirUpplýsingagjöf
0
Yfirlit sjóða

Úrval sjóða er fjölbreytt og kemur til móts við ólíkar þarfir fólks.

Yfirlit sjóða
Skýrslur
HluthafafundirFjárhagsupplýsingarAtkvæðagreiðslurHálfsársbréf
Fjölmiðlar
FréttirKauphallartilkynningarMarkaðsmál
Gögn
APIPóstlisti
0
Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Stefnis og við sendum þér áhugavert efni reglulega.

Póstlisti
Starfsemi
Um StefniSkipuritStjórnStjórnarhættirGildi StefnisStarfsfólk
Reglur og samþykktir
Reglur og samþykktirReglur vegna hagsmunaáekstraRéttarúrræði viðskiptavina
Annað
Lagalegir fyrirvararMarkaðsþreifingarVefkökur
0
Stefnir hf.

Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Yfirlit sjóða

Viðskipti með sjóði

Engin kaupþóknun, ekkert afgreiðslugjald og engin krafa um lágmarkskaup í sjóðum í Arion appinu.

Viðskipti með sjóðiInnskráning í netbanka
Um Stefni

Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Félagið starfar á grundvelli starfsleyfa frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Auk þess tekur starfsleyfi rekstrarfélagsins til eignastýringar, fjárfestingaráðgjafar og vörslu og umsýslu hlutdeildarskírteina eða hluta sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.

Hafðu samband

Opið virka daga 9-16

+354 444 7400

stefnir@stefnir.is

Styttu þér leið
StarfsfólkStjórnSpurt og svaraðFjárhagsupplýsingarReglur og samþykktirPersónuverndaryfirlýsing
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedIn


Stefnir hf.

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 700996 - 2479

Lagalegir fyrirvararStillingar fótspora
  1. Sjóðir
  2. ▸
  3. ...
  4. ▸
  5. Ábyrgar fjárfestingar
  6. ▸
  7. Aðferðafræði

Að­ferðafræði

Leiðandi í ábyrgum fjár­festingum

Stefnir hefur á síðustu árum stigið mikilvæg skref í því að vera leiðandi í ábyrgum fjárfestingum. Við erum aðilar að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (UN PRI) og stofnaðili Iceland SIF, vettvangs til að efla þekkingu og auka umræður um ábyrgar fjárfestingar.

Það er mikilvægt að þeim skuldbindingum sem við höfum tekist á hendur sé fylgt eftir með markvissum hætti og með því að nýta fjármagn sem drifkraft er hægt að viðhalda sjálfbærri þróun og á sama tíma að efla samkeppnishæfni þjóða og framtíð komandi kynslóða.

Um aðferðafræði Stefnis

Við stýringu sjóða er mikilvægt að upplýsa eigendur sjóða með hvaða hætti við erum að innleiða aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga í alla starfsemi Stefnis.

Í stefnu félagins um ábyrgar fjárfestingar kemur fram hvernig við munum líta til umhverfismála, félagslegra þátta og góðra stjórnarhátta við fjárfestingu í fyrirtækjum og öðrum útgefendum.

Hér á eftir kemur stutt lýsing á helstu þáttum sem snúa að aðferðafræði Stefnis við val á fjárfestingum.

UFS ráð Stefnis

UFS ráð vinnur samkvæmt starfsreglum, veitir stuðning við samval fjárfestinga og fullvissu um að unnið sé samkvæmt þeim viðmiðum um ábyrgar fjárfestingar sem sett eru í starfsemi Stefnis. Starfsmenn Stefnis sem eiga sæti í UFS ráði eru kyndilberar innleiðingar aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga í alla starfsemi Stefnis.

Stjórnar- og starfsmönnum Stefnis býðst að taka námskeið hjá PRI Academy í aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga. PRI Academy er helsti fræðsluvettvangur fyrir þá sem vilja öðlast skilning á því hvernig umhverfismál, félagslegir þættir og góðir stjórnarhættir hafa áhrif á frammistöðu fyrirtækja og auka virði allra haghafa.

Stefnir samþættir UFS málefni í fjárfestingarferli sjóða í stýringu félagsins þar sem því verður við komið. Sérstaklega er skimað fyrir félögum sem samræmast ekki þeim siðferðilegum takmörkunum sem ákveðnar hafa verið og beitt er þematískri aðferðafræði í sjóðum þar sem það á við.

Við mat á sérhæfðum fjárfestingarkostum er notast við áreiðanleikakannanir til að greina og draga fram þau atriði í rekstri og fjárhag félaga sem skipta mestu máli. Sérstaklega er hugað stöðu UFS þátta í þessu sambandi og tekur umfang UFS athugunar sem framkvæmd er mið af eðli þess fjárfestingarkosts sem er til skoðunar hverju sinni.

Stefnir fylgir reglum um meðferð umboðsatkvæða og beitir Stefnir hluthafaréttindum í samræmi við mat á hagsmunum sjóðanna, m.a. við atkvæðagreiðslu á hluthafafundum. Með virku eignarhaldi beitum við okkur fyrir jákvæðum breytingum með hag umhverfis, félagslegra málefna og stjórnarhátta í fyrirrúmi til skemmri og lengri tíma.

Viðauki I við stefnu um ábyrgar fjárfestingar samþykkt af UFS ráði Stefnis 21.01.2025. Viðeigandi skjöl verð uppfærð vegna endurskoðunar á þessum viðauka.

Starfsemi

Skýring

Neikvæð skimun

Jákvæð skimun

Fremst meðal jafningja

Áfengisframleiðendur

Fyrirtæki sem hafa tekjur af framleiðslu á áfengum drykkjum auk smásölu- og dreifingaraðilum og birgjum.

X

Cannabis

Framleiðsla og dreifing cannabis efna í öðru en læknisfræðilegum tilgangi.

X

Framleiðsla á feldi

Fyrirtæki sem hafa tekjur af framleiðslu á feldi, eða annarra framandi afurða sem unnar eru úr dýraskinni.

X

Dýratilraunir

Fyrirtæki sem gera prófanir á dýrum sem ekki í samræmi við löggjöf Evrópusambandsins fyrir aðra starfsemi en lyfjastarfsemi. Þetta á t.d. við aukefni í matvælum.

X

Dýratilraunir vegna þróunar á sviði heilbrigðisvísinda

Fyrirtæki sem gera prófanir á dýrum fyrir lyf, lækningatæki eða líftækni.

X

Fjárhættuspil

Fyrirtæki sem hafa tekjur af fjárhættuspilum. Það eru fyrirtæki sem bjóða upp á fjárhættuspil þ.m.t. rekstur spilavíta og fjárhættuspil á netinu.

X

Námuvinnsla

Námur sem ekki eru starfræktar í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum og brjóta á mannréttindum.

X

Kjarnorkuframleiðsla

Fyrirtæki sem hafa tekjur af framleiðslu kjarnorku. Skimunin nær ekki yfir dreifingu kjarnorku eða þjónustu sem styður við kjarnorkuiðnaðinn.

X

Kola- og olíusandavinnsla

Fyrirtæki sem stunda kola- eða olíusandavinnslu.

X

Olíuframleiðsla

Fyrirtæki sem hafa tekjur af olíuframleiðslu.

X

Klámframleiðsla

Fyrirtæki sem hafa tekjur af framleiðslu kláms.

X

Okurlánastarfsemi

Fyrirtæki sem hafa okurlánastarfsemi að meginstarfsemi.

X

Starfsemi sem brýtur á grundvallarmannréttindum s.s. þrælkun

Stefnir styðst við Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um grundvallarmannréttindi, sjá hér.

X

Tóbaksframleiðendur

Fyrirtæki sem hafa tekjur af framleiðslu tóbaksvörum þ.m.t. sígarettum, vindlum, tóbaki og neftóbaki.

X

Umdeilanleg vopnaframleiðsla

Jarðsprengjur, klasasprengjur, efnavopn, sýklavopn og gerðeyðingarvopn.

X



Neikvæð skimun: Ekki er heimilt að fjárfesta í starfsemi eða atvinnugrein.

Jákvæð skimun: Horft er til þeirra félaga sem eru að ýta undir jákvæða þróun í atvinnugreininni og standa betur en aðrir samanburðaraðilar samkvæmt matsaðilum og samkvæmt innri matsferlum Stefnis.

Fremst meðal jafningja: Það félag eða útgefandi valið sem meðal samanburðaraðila stendur sig best samkvæmt matsaðilum og samkvæmt innri matsferlum Stefnis.

Heimilt er að fjárfesta í ETF sjóðum þar sem tekjur af þeim atvinnugreinum sem falla undir neikvæða skimum er undir 1% af heildartekjum undirliggjandi félaga í sjóðnum

Eldri útgáfur