Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
Stefnir er rótgróið íslenskt sjóðastýringarfyrirtæki með um 379 milljarða króna í virkri sjóðastýringu í lok árs 2024. Hjá Stefni starfa um 20 sérfræðingar í þremur teymum við stýringu á fjölbreyttu úrvali verðbréfasjóða, sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og fagfjárfestasjóða. Einnig stýrir félagið eignum nokkurra samlagshlutafélaga sem stofnuð hafa verið í kringum framtaksfjárfestingar.
Stefnir var stofnaður árið 1996 og hefur á að skipa reynslumiklu starfsfólki með um 10 ára reynslu að meðaltali af störfum á fjármálamarkaði. Félagið hefur allt frá upphafi verið í fararbroddi í þróun á nýjum tegundum sjóða, jafnt fyrir einstaklinga sem og fagfjárfesta. Við þróun og stýringu sjóða er fyrst og fremst horft til hagsmuna viðskiptavina. Stefnir telur að traust og trúnaður séu forsendur langtímasambands við viðskiptavini. Því er lögð mikil áhersla á heiðarleika í samskiptum og gegnsæi í upplýsingagjöf.
Hlutverk Stefnis er að stýra fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Viðskiptavinir Stefnis eiga hlutdeildarskírteini í sjóðum í stýringu Stefnis. Þessi hlutdeildarskírteini eru ávísun á hlut í eignasafni sjóðanna. Eignir sjóðanna eru því alfarið í eigu hlutdeildarskírteinishafa (sjóðfélaga) á hverjum tíma. Lögum samkvæmt er eignum Stefnis hf. og eignum sjóða í stýringu haldið aðgreindum í fjárhagsuppgjöri. Varsla á eignum sjóðanna, ásamt útreikningi á gengi sjóða, er í höndum Arion banka.
Stefnir leggur sérstaka áherslu á öryggi í allri starfsemi sinni. Í því skyni hefur félagið komið sér upp margþættu eftirlits- og áhættustýringarkerfi sem byggist meðal annars á skýrum verkferlum, ytri og innri endurskoðun, regluvörslu og sérsmíðuðum eftirlitskerfum með fjárfestingarstefnum. Jafnframt framkvæmir félagið árlega innra áhættumat á helstu rekstraráhættuþáttum. Verðbréfasjóðir og sérhæfðir sjóðir Stefnis fyrir almenna fjárfesta lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins, lögum samkvæmt.
Verðbréfasjóðir eru söfn skuldabréfa, hlutabréfa og ýmissa annarra auðseljanlegra verðbréfa. Íslenskir verðbréfasjóðir starfa samkvæmt lögum um verðbréfasjóði nr. 116/2021. Markmið laganna er að gera verðbréfasjóði að öruggum kosti fyrir þá sem eiga í þeim hlutdeildarskírteini. Samkvæmt lögunum eru allir sjóðir reknir af rekstarfélaginu Stefni sem er sjálfstæður lögaðili. Öll umsjá og varsla verðbréfa er í höndum Arion banka hf . Vörslufélagið sér meðal annars um að gengisútreikningar, sala, útgáfa og innlausn hlutdeildarskírteina fari fram samkvæmt lögum og samþykktum sjóða.
Með innlausn er átt við þegar viðskiptavinur skilar inn hlutdeildarskírteinum (innleysir þau) og fær í skiptum reiðufé á reikning sinn. Upphæðin sem viðskiptavinur fær jafngildir fjölda eininga sem hann á í sjóðnum (innleysir) margfaldaðar með gengi sjóðs á innlausnardegi (að frádregnu afgreiðslugjaldi og að teknu tilliti til skattalegs uppgjörs).
Fjárfestingarstefna íslenskra verðbréfasjóða er ákveðin fyrir fram og geta fjárfestar þannig kynnt sér heimildir sjóða áður en til fjárfestingar kemur. Fjárfestingarstefnu verðbréfasjóðs verður ekki breytt nema að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins sem hefur eftirlit með starfsemi viðkomandi rekstrarfélags og þar með sjóðanna.
Verðbréfasjóðir hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum enda kostir þeirra nokkrir umfram einstök bréf.
Áhættudreifing er meiri þar sem eignasöfn eru vel dreifð
Hægt að kaupa og selja hlutdeildarskírteini að vild án þess að bíða eftir ásættanlegu verði í einstök bréf
Heimildir til fjárfestinga á óskráðum mörkuðum eru takmarkaðar af ofangreindum lögum sem eykur seljanleika bréfanna og dregur úr vanskila- og tapsáhættu
Ekki þarf að hafa áhyggjur af gjalddögum eða endurfjárfestingu
Hægt að fjárfesta fyrir lægri fjárhæðir en í einstökum bréfum
Þrátt fyrir að verðbréfasjóðir fjárfesti í vel dreifðu eignasafni þá er hins vegar alltaf ákveðin áhætta fyrir hendi sem ekki er hægt að eyða en þó hægt að draga úr ef kunnáttan er fyrir hendi. Helstu þættir sem geta haft áhrif á verðmæti hlutdeildarskírteina í sjóðum er nefndir hér fyrir neðan.
Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna eru starfsleyfisskylt form sjóða um sameiginlega fjárfestingu skv. lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða nr. 45/2020. Um sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta gilda aðrar reglur en um verðbréfasjóði að því er varðar fjárfestingarheimildir og innlausnarskyldu. Fjárfestingarheimildir sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta eru rýmri skv. lögunum og getur fjárfesting í þeim því verið áhættusamari en fjárfesting í verðbréfasjóðum. Fjárfestar eru hvattir til að hafa í huga þennan mun á sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta og verðbréfasjóðum og kynna sér sérstaklega fjárfestingarstefnu sem gildir fyrir þá sjóði sem þeir eiga hlutdeildarskírteini í eða hyggjast fjárfesta í framtíðinni.
Í 2. mgr. 160. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög er samlagshlutafélag skilgreint sem sú tegund samlagsfélaga þar sem einn eða fleiri félagsmenn (ábyrgðaraðilar) bera beina og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins en aðrir félagsmenn (hluthafar), einn eða fleiri, bera takmarkaða ábyrgð á grundvelli framlaga sem mynda hlutafé í félaginu. Ábyrgðaraðilar geta einnig verið hluthafar. Um samlagsfélög fer samkvæmt lögum um hlutafélög.
Stefnir lýtur margþættu eftirliti af hálfu innri og ytri eftirlitsaðila. Félagið er hlutafélag lögum samkvæmt og birtir ársreikning sem er aðgengilegur á heimasíðu þess. Það er mikilvægt að gera sér ljósan þann aðskilnað sem er á milli Stefnis og þeirra sjóða sem hann rekur. Stefnir rekur fjölda sjóða og í því felst að stýring og umsýsla eigna sjóðanna er í höndum starfsfólks Stefnis en eign hlutdeildarskírteinishafa er ávallt ávísun á hlutfallslega eign í sjóði. Einnig er varsla eigna sjóðanna í höndum sjálfstæðs vörslufyrirtækis sem hlotið hefur viðurkenningu Fjármálaeftirlitsins.
Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 116/2021 kemur fram hvernig eignatilkall til hlutdeildar í sjóði er skilgreint en það er sem hér segir: „Hlutdeildarskírteinishafar eiga sama rétt til tekna og eigna sjóðsins eða viðkomandi deildar í hlutfalli við hlutdeild sína og eru hlutdeildarskírteinin staðfesting á tilkalli til eignarhlutdeildar“. Með þessu er áréttað að rekstrarfélag á ekkert tilkall til eigna sjóðsins svo fremi sem hann er ekki hlutdeildarskírteinishafi í sjóðnum en þá á hann hlutfallslega eign í sjóðnum líkt og aðrir hlutdeildarskírteinishafar. Að sama skapi ber rekstrarfélagið ekki rekstrarlega áhættu af sjóðunum.
Ársreikningi rekstrarfélagsins og sjóða í rekstri félagsins er haldið aðskildum en allir sjóðir eru með eigin efnahags- og rekstrarreikning.
Í útboðslýsingum sjóðanna er tilgreind fjárfestingarstefna sem rekstrarfélagi ber að fara eftir. Umsjónarmenn sjóðanna fylgja ströngum verkferlum varðandi ákvarðanatöku um fjárfestingar sjóða og kveða verkferlarnir m.a. skýrt á um að fjárfestingar verði að vera innan ramma fjárfestingarstefnu sjóðanna. Í innra eftirliti með sjóðunum er daglega fylgst með mögulegum frávikum frá fjárfestingarstefnu og ársfjórðungslega er eignaskipting verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta send Fjármálaeftirlitinu. Hlutdeildarskírteinishafar geta séð eignaskiptingu sjóða.