Viðskipti með sjóði
Um sjóði
Yfirlit sjóðaSamanburður sjóðaSérhæfðar fjárfestingarSkráðir fjármálagerningarÁhættaGjöldMeðeignEldri sjóðir
Viðskipti með sjóði
Viðskipti með sjóðiSparnaður barnaFermingarmótframlagSöluaðilarSkattamál sjóðaSpurt og svarað
Sjálfbærni
Ábyrgar fjárfestingarÁrangur og markmiðÓfjárhagslegar upplýsingarStjórnarhættirUpplýsingagjöf
0
Yfirlit sjóða

Úrval sjóða er fjölbreytt og kemur til móts við ólíkar þarfir fólks.

Yfirlit sjóða
Skýrslur
HluthafafundirFjárhagsupplýsingarAtkvæðagreiðslurHálfsársbréf
Fjölmiðlar
FréttirKauphallartilkynningarMarkaðsmál
Gögn
APIPóstlisti
0
Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Stefnis og við sendum þér áhugavert efni reglulega.

Póstlisti
Starfsemi
Um StefniSkipuritStjórnStjórnarhættirGildi StefnisStarfsfólkUmsókn um starf
Reglur og samþykktir
Reglur og samþykktirReglur vegna hagsmunaáekstraRéttarúrræði viðskiptavina
Annað
Lagalegir fyrirvararMarkaðsþreifingarVefkökur
0
Stefnir hf.

Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Yfirlit sjóða

Viðskipti með sjóði

Engin kaupþóknun, ekkert afgreiðslugjald og engin krafa um lágmarkskaup í sjóðum í Arion appinu.

Viðskipti með sjóðiInnskráning í netbanka
Um Stefni

Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Félagið starfar á grundvelli starfsleyfa frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Auk þess tekur starfsleyfi rekstrarfélagsins til eignastýringar, fjárfestingaráðgjafar og vörslu og umsýslu hlutdeildarskírteina eða hluta sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.

Hafðu samband

Opið virka daga 9-16

+354 444 7400

stefnir@stefnir.is

Styttu þér leið
StarfsfólkStjórnSpurt og svaraðFjárhagsupplýsingarReglur og samþykktirPersónuverndaryfirlýsing
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedIn


Stefnir hf.

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 700996 - 2479

Lagalegir fyrirvararStillingar fótspora
  1. Um Stefni
  2. ▸
  3. Starfsemi
  4. ▸
  5. Stjórn

Stjórn

Aðalstjórn

Á hluthafafundi Stefnis hf. þann 7. maí 2025 voru eftirfarandi aðilar kjörnir í aðalstjórn félagsins.

Starfsreglur stjórnar Stefnis


Jón Óttar Birgisson

Jón Óttar Birgisson

Stjórnarformaður

Formaður stjórnar Stefnis er Jón Óttar Birgisson fæddur 1974.

Jón Óttar hefur yfir 20 ára reynslu af fjármálamörkuðum og fyrirtækjarekstri. Jón Óttar starfar sem framkvæmdastjóri Stöplar Advisory ehf., sem sérhæfir sig í fyrirtækjaráðgjöf m.t.t. endurskipulagningar, samruna og fjármögnunar. Áður starfaði hann sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar hjá MP banka og þar áður sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar hjá Saga Capital. Jón Óttar átti sæti í stjórn Stefnis á tímabilinu 2020 - 2022. Þá gegndi hann tímabundið stöðu forstöðumanns sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni, frá desember 2022 og fram á haust 2023.

Jón Óttar er framkvæmdastjóri og stjórnarmaður eftirfarandi félaga: Kasi Consulting ehf., Stöplar Advisory ehf. og Kveldúlfsgata fjárfestingar ehf. Þá er Jón stjórnarmaður í Síðumúla 27 ehf., Nova hf., Nova Klúbbsins ehf., JVB Investments ehf. og EVE Harpa ehf.

Jón Óttar er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Kristín María Dýrfjörð, stærri mynd

Kristín María Dýrfjörð

Stjórnarmaður

Kristín María Dýrfjörð situr í stjórn Stefnis og er fædd 1982.

Kristín María er í dag einn eiganda Te og Kaffi ehf. og jafnframt stjórnarformaður, en hún hefur starfað hjá Te og Kaffi ehf. síðan 2009, m.a. sem markaðsstjóri þess. Hún er einnig stjórnarformaður Kaffibrennslu Hafnarfjarðar ehf.

Kristín María er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.

Kristín María eða tengdir aðilar eiga enga eignahluti eða kauprétti í félaginu og engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptaaðila, samkeppnisaðila eða hluthafa Stefnis.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, stærri mynd

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir

Stjórnarmaður

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, situr í stjórn Stefnis og er fædd 1969.

Hrefna er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi og situr í framkvæmdastjórn Creditinfo Group. Hrefna hefur fjölbreytta reynslu af fjármálamarkaði. Hrefna var framkvæmdastjóri Markaða hjá Landsbankanum á árunum 2010-2021. Áður starfaði hún sem sjóðsstjóri framtaksfjárfestinga hjá Arev verðbréfafyrirtæki, hún var forstöðumaður skráningarsviðs hjá Kauphöllinni og starfaði sem forstöðumaður einstaklingsþjónustu hjá verðbréfafyrirtækinu Fjárvangi. Hrefna situr í stjórn lyfjafyrirtækisins Choripharma og stjórn Viðskiptaráðs. Þá hefur hún fjölbreytta stjórnarreynslu svo sem sem stjórnarmaður í Framtakssjóði Íslands og Umbreytingu II framtakssjóði í stýringu hjá Alfa. Hrefna var einn af stofnaðilum IcelandSIF.

Hrefna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk löggildingarprófi í verðbréfum 2011. Hrefna lauk AMP námi frá IESE í Barcelona árið 2021.

Hrefna eða tengdir aðilar eiga enga eignarhluti eða kauprétti í félaginu og engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptaaðila, samkeppnisaðila eða hluthafa Stefnis.

Fram­kvæmda­stjóri

Jón Finnbogason

Jón Finnbogason

Framkvæmdastjóri Stefnis

Framkvæmdastjóri Stefnis er Jón Finnbogason fæddur 1973.

Jón hefur fjölbreytta reynslu af fjármálamarkaði eða allt frá árinu 1999 og hefur hann gengt stjórnunarstörfum innan fjármálafyrirtækja allt frá árinu 2009. Síðast starfaði Jón sem forstöðumaður fyrirtækjahluta á fyrirtækja- og fjárfestingabankasviði Arion banka hf. og einnig sem útlánastjóri (e. Chief Credit Officer) bankans.

Stór hluti af starfsreynslu Jóns er frá hans fyrri störfum hjá Stefni hf. en hann starfaði hjá félaginu fyrst á árunum 2003 til 2008 og aftur frá 2013 til 2017, þá sem forstöðumaður skuldabréfateymis Stefnis. Þá starfaði Jón hjá Byr sparisjóði frá árunum 2009 til 2011 fyrst sem yfirlögfræðingur og svo sem sparisjóðsstjóri og forstjóri Byrs hf.. Á árunum 2011 til 2013 starfaði Jón sem aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka hf.

Jón hefur verið virkur í stjórnar- og sjálfboðaliðastörfum allt frá árinu 1996 og þar til hann hóf störf sem framkvæmdastjóri Stefnis 2022. Ber þá helst að nefna, stjórn Fimleikasambands Íslands 1996 – 2000, stjórn Íþróttafélagsins Gerplu 2003 - 2013 og þar af sem formaður stjórnar frá 2006 - 2013. Stjórn Íþrótta og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) í varastjórn á árunum 2015 - 2017 og í framkvæmdastjórn ÍSÍ á árunum 2017 - 2019. Varabæjarfulltrú í bæjarstjórn Kópavogs 2014 – 2022 og bæjarfulltrúi 2022.

Jón lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1998. Hann er einnig lögmaður með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Árið 2002 lauk hann prófi í verðbréfaviðskiptum.

Endurskoðunar- og áhættunefnd

Stjórn Stefnis hefur skipað endurskoðunar- og áhættunefnd Stefnis og er hún starfrækt sbr. 108 gr. a laga nr. 3/2006 um ársreikninga þar sem kveðið er á um að einingar tengdum almannahagsmunum skuli hafa endurskoðunarnefnd sem skipuð skal eigi færri en þremur mönnum.

Meirihluti nefndarmanna er óháður félaginu og Arion banka hf., móðurfélagi Stefnis hf.

Í nefndinni sitja:

Jón Óttar Birgisson, formaður,
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir,
Kristín María Dýrfjörð.

Endurskoðandi félagsins er Deloitte ehf.

Reglur Stefnis hf. um framkvæmd starfa endurskoðunar- og áhættunefndar

Starfskjaranefnd

Stjórn Stefnis hefur skipað starfskjaranefnd Stefnis og er hún starfrækt sbr. 17. gr. c. laga 116/2021 um verðbréfasjóði og 21. gr. c. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða þar sem kveðið er á um að rekstrarfélag/rekstraraðili sem er mikilvægur skuli hafa starfskjaranefnd sem skipuð skal eigi færri en þremur mönnum.

Í nefndinni sitja:

Jón Óttar Birgisson, formaður,
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir,
Kristín María Dýrfjörð.

Meirihluti nefndarmanna er óháður félaginu og Arion banka hf., móðurfélagi Stefnis hf.

Starfsreglur starfskjaranefndar Stefnis