Viðskipti með sjóði
Um sjóði
Yfirlit sjóðaSamanburður sjóðaSérhæfðar fjárfestingarSkráðir fjármálagerningarÁhættaGjöldMeðeignEldri sjóðir
Viðskipti með sjóði
Viðskipti með sjóðiSparnaður barnaFermingarmótframlagSöluaðilarSkattamál sjóðaSpurt og svarað
Sjálfbærni
Ábyrgar fjárfestingarÁrangur og markmiðÓfjárhagslegar upplýsingarStjórnarhættirUpplýsingagjöf
0
Yfirlit sjóða

Úrval sjóða er fjölbreytt og kemur til móts við ólíkar þarfir fólks.

Yfirlit sjóða
Skýrslur
HluthafafundirFjárhagsupplýsingarAtkvæðagreiðslurHálfsársbréf
Fjölmiðlar
FréttirKauphallartilkynningarMarkaðsmál
Gögn
APIPóstlisti
0
Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Stefnis og við sendum þér áhugavert efni reglulega.

Póstlisti
Starfsemi
Um StefniSkipuritStjórnStjórnarhættirGildi StefnisStarfsfólkUmsókn um starf
Reglur og samþykktir
Reglur og samþykktirReglur vegna hagsmunaáekstraRéttarúrræði viðskiptavina
Annað
Lagalegir fyrirvararMarkaðsþreifingarVefkökur
0
Stefnir hf.

Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Yfirlit sjóða

Viðskipti með sjóði

Engin kaupþóknun, ekkert afgreiðslugjald og engin krafa um lágmarkskaup í sjóðum í Arion appinu.

Viðskipti með sjóðiInnskráning í netbanka
Um Stefni

Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Félagið starfar á grundvelli starfsleyfa frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Auk þess tekur starfsleyfi rekstrarfélagsins til eignastýringar, fjárfestingaráðgjafar og vörslu og umsýslu hlutdeildarskírteina eða hluta sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.

Hafðu samband

Opið virka daga 9-16

+354 444 7400

stefnir@stefnir.is

Styttu þér leið
StarfsfólkStjórnSpurt og svaraðFjárhagsupplýsingarReglur og samþykktirPersónuverndaryfirlýsing
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedIn


Stefnir hf.

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 700996 - 2479

Lagalegir fyrirvararStillingar fótspora
  1. Sjóðir
  2. ▸
  3. Scandinavian Fund

Stefn­ir - Scandi­navi­an Fund - ESG hs.

Þetta er markaðsefni

Athugið að þetta er ekki bindandi samningur heldur markaðsefni. Vinsamlega skoðaðu útboðslýsingu verðbréfasjóðsins og lykilupplýsingar og byggðu ekki endanlega fjárfestingarákvörðun eingöngu á þessum upplýsingum.

Fyr­ir hvern er sjóð­ur­inn

Sjóðurinn fjárfestir í norrænum fyrirtækjum með áherslu á sjálfbærni og góða stjórnarhætti. Hann hentar fjárfestum sem vilja ábyrgari fjárfestingar og eru reiðubúnir að taka á sig áhættu í meðallagi. Ráðlagður lágmarkstími fjárfestingar er fimm ár.

Kaupa í sjóðiLykilupplýsingar
Sveifl­ur í ávöxt­un
Áhættuvísir sjóðs sýnir heildaráhættu hans, þar sem hærra gildi þýðir meiri áhættu sem getur leitt til meiri hagnaðar eða taps. Áhættan byggist á sveiflum í verði undirliggjandi eigna.
Ráð­lagð­ur fjár­fest­ing­ar­tími
Ráðlagður fjárfestingartími er sá lágmarkstími sem mælt er með að halda fjárfestingu í sjóðnum, með tilliti til fjárfestingarstefnu hans og sveiflna í ávöxtun.
Kaupa í sjóðiLykilupplýsingar

Fjárfestingarstefna

Stefnir Scandinavian Fund – ESG hs. tekur mið af umhverfislegum og félagslegum þáttum og stjórnarháttum (UFS) við fjárfestingarákvarðanir með það að markmiði að draga úr áhættu og skila sjálfbærri ávöxtun til lengri tíma. Sérstakt UFS áhættumat er unnið á öllum eignum og fjárfestingarkostum af fjárfestingarteymi sjóðsins og óháðum utanaðkomandi þriðja aðila.

Sjóðnum er stýrt skv. þematískri aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga. Sjóðurinn fjárfestir í fyrirtækjum á Norðurlöndum og fjárfestir í þeim fyrirtækjum, atvinnugreinum og löndum sem að mati rekstraraðila eru líklegastir til að skila sem bestri ávöxtun, félögum sem sýnt hafa fram á háa og stöðuga arðsemi, eru hóflega skuldsett og standa frammi fyrir tækifærum til innri vaxtar.

Markmið sjóðsins er að skila eigendum markvisst betri ávöxtun en vísitala skandínavískra hlutabréfa (MSCI Nordic 10/40). Við fjárfestingar mun Stefnir - Scandinavian Fund ESG taka tillit til umhverfislegra, félagslegra þátta og stjórnarhátta. Fjárfest er samkvæmt stefnu Stefnis hf. um ábyrgar fjárfestingar. Sjóðurinn hentar þeim sem vilja ná fram áhættudreifingu með fjárfestingu í erlendum hlutabréfum og þola miklar sveiflur í ávöxtun.

Skjöl

Lykilupplýsingar
Útboðslýsing
Upplýsingagjöf tengd sjálfbærni
Reglubundin upplýsingagj. SFDR
Árs- og árshlutareikningur sjóðs
Skattamál sjóða

Fjárfestingarheimildir

Lágmark

Hámark

Hlutabréf sem tekin hafa verið til viðskipta á erlendum skipulegum verðbréfamörkuðum

80%

100%

Innlán fjármálafyrirtækja

0%

10%

Peningamarkaðssjóðir

0%

10%

Hlutdeildarskírteini kauphallarsjóða

0%

10%

Afleiður vegna stöðutöku

0%

25%

Innlend hlutabréf

0%

10%

Al­menn­ur fyr­ir­vari vegna fjár­fest­inga í sjóð­um

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að áhætta af fjárfestingu eykst ef hún er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna sveiflna í ávöxtun. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.

Sérhver fjárfestir er hvattur til að framkvæma eigin athuganir og greiningar, m.a. kynna sér viðeigandi upplýsingaskjöl og leggja sjálfstætt mat á slík skjöl áður en ákvörðun er tekin um tiltekna fjárfestingu. Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu Stefnis þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.

Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem Stefnir telur áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Stefnir ber enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.