Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
Athugið að þetta er ekki bindandi samningur heldur markaðsefni. Vinsamlega skoðaðu útboðslýsingu verðbréfasjóðsins og lykilupplýsingar og byggðu ekki endanlega fjárfestingarákvörðun eingöngu á þessum upplýsingum.
Sjóðurinn fjárfestir í innlendum og erlendum skuldabréfum sem styðja sjálfbærni. Hann hentar þeim sem vilja tekjustreymi með litla áhættu og leggja áherslu á samfélagsleg áhrif. Ráðlagður lágmarkstími fjárfestingar er tvö ár.
Með fjárfestingum sjóðsins er leitast við að ná fram ávöxtun í safni skuldabréfa, innlendra sem erlendra, sem hafa verið útgefin af ríkissjóði, fyrirtækjum, fjármálastofnunum, opinberum aðilum eða öðrum félögum með sjálfbærni að markmiði. Markmiðin geta bæði snúið að því að hafa jákvæð umhverfisleg áhrif sem og félagsleg áhrif.
Lágmark | Hámark | |
|---|---|---|
Sjálfbær skuldabréf í ISK skráð á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf | 0% | 100% |
Sjálfbær skuldabréf í ISK, óskráð | 0% | 50% |
Sjálfbær skuldabréf í erlendri mynt | 0% | 80% |
Ríkisskuldabréf | 0% | 80% |
Innlán eða víxlar fjármálafyrirtækja | 0% | 50% |
Verðbréfasjóðir skv. lögum 128/2011 og sjóðir um sameiginlega fjárfestingu skv. lögum 45/2020 sem fjárfesta í sjálfbærum skuldabréfum | 0% | 10% |
Fjárfestingar skv. framangreindu í óskráðum fjármálagerningum mega samanlagt nema allt að 50% af heildareignum sjóðsins, sbr. 8. mgr. 4. gr. reglna sjóðsins.
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að áhætta af fjárfestingu eykst ef hún er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna sveiflna í ávöxtun. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.
Sérhver fjárfestir er hvattur til að framkvæma eigin athuganir og greiningar, m.a. kynna sér viðeigandi upplýsingaskjöl og leggja sjálfstætt mat á slík skjöl áður en ákvörðun er tekin um tiltekna fjárfestingu. Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu Stefnis þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.
Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem Stefnir telur áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Stefnir ber enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.