Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Festi er leiðandi verslunarfyrirtæki á Íslandi sem rekur fjölda verslana undir mismunandi vörumerkjum, til að mynda Krónan, N1, Elko og Lyfja.
Í byrjun árs 2014 gekk SÍA II ásamt hópi einkafjárfesta frá kaupum á innlendri starfsemi Norvikur, fyrir utan Byko, en sú starfsemi náði m.a. yfir verslunarrekstur á vegum Kaupás, Elko og Intersport auk vöruhótelsins Bakkans og auglýsingastofunnar Expo. Kaupandinn í viðskiptunum var Festi hf. og var félagið að fullu í eigu SF V slhf., en stærsti hluthafi þess var SÍA II. Í ágúst 2018 var gengið frá sölu á Festi til N1, en í kjölfarið fékk móðurfélagið nafnið Festi.

Skeljungur var stofnað árið 1928 sem olíufélag og rak á þeim tíma bensínstöðvar undir merkjum Shell. Í dag rekur félagið m.a. bílaþvottastöðina Löður, Klett þjónustumiðstöð og bensínstöðvar undir vörumerkjunum Orkunnar. Starfsemi félagsins er um land allt.
Í janúar 2014 leiddi SÍA II hóp fjárfesta í kaupum á Skeljungi. Félagið var skráð á markað í desember 2016.

Verne Global rekur gagnaver í Reykjanesbæ. Félagið býður viðskiptavinum sínum öruggar og skalanlegar gagnaverslausnir, sem nýta eingöngu endurnýjanlega orku.
SÍA II tók þátt í hlutafjáraaukningu í desember 2014 og um mitt ár 2015. Í lok árs 2021 seldi sjóðurinn eignarhlut sinn.

Kynnisferðir var stofnað 1968 og er eitt stærsta og elsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Félagið hefur frá upphafi verið leiðandi í skipulögðum dagsferðum um Ísland, en það rekur m.a. hópferðabíla undir vörumerkinu Reykjavík Excursions og flugrútuna (Flybus). Árið 2020 sameinuðust Kynnisferðir Eldey. Við samrunann bættist ný tekjustoð tengd afþreyingu við félagið og í kjölfarið var nafni samstæðunnar breytt í Icelandia.
SÍA II fjárfesti í Kynnisferðum í október 2015.