Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Sjóvá er eitt elsta og stærsta tryggingafélag landsins og býður upp á alhliða vátryggingalausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
SÍA I, ásamt lífeyrissjóðum, fjárfesti í Sjóvá í júlí 2011. Sjóvá var skráð á markað í apríl 2014.

Hagar er leiðandi verslunarfyrirtæki á Íslandi og rekur fjölda verslana undir mismunandi vörumerkjum. Meginstarfsemi Haga er á sviði matvöru- og eldsneytissölu, en félagið rekur m.a. Bónus, Hagkaup og Olís.
SÍA I ásamt hópi meðfjárfesta lauk fjárfestingu í Högum í maí 2011. Hagar var skráð í Kauphöll Íslands í desember 2011.

Sjóklæðagerðin er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926. Félagið hannar og framleiðir hágæða útivistar- og vinnufatnað undir merkinu 66°NORÐUR.
SÍA I fjárfesti í Sjóklæðagerðinni í júní 2011 og seldi sjóðurinn hlut sinn í mars 2012.

Jarðboranir sérhæfa sig í öflun jarðhita með djúpborunum og er eitt fremsta fyrirtæki heims á því sviði. Félagið stendur að borframkvæmdum bæði á Íslandi og erlendis, t.d. í Danmörku, Nýja Sjálandi, Þýskalandi, Karabíska hafinu og á Azoreyjum.
SÍA I fjárfesti í Jarðborunum í mars 2012. Sjóðurinn seldi eignarhlut sinn í félaginu í lok árs 2022 og í kjölfarið var SÍA I slitið.