Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
Sjóðurinn er opinn fyrir fjárfestingum í fjölbreyttum félögum í íslensku atvinnulífi.

Lava Show er einstök ferðamannaupplifun sem endurskapar aðstæður eldgoss með því að hita raunverulegt hraun upp í 1100°C og láta það flæða í návígi við áhorfendur. Félagið var stofnað árið 2010 og opnaði fyrstu sýningu sína í Vík í Mýrdal árið 2018, en síðar var opnuð önnur sýning á Granda í Reykjavík árið 2022.
SÍA V fjárfesti í Lava Show á árinu 2026.
Framtakssjóðurinn SÍA V hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Sóma ehf., einu þekktasta og elsta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins á sviði samloka og tilbúinna rétta. Kaupin ná einnig til dótturfélagsins Þykkvabæjar ehf. og eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Sómi, Júmbó og Þykkvabæjar hafa um áratugaskeið verið meðal fremstu vörumerkja á íslenskum neytendamarkaði. Samstæðan framleiðir fjölbreytt úrval af samlokum, vefjum, salötum og öðrum tilbúnum réttum sem seldir eru í verslunum, bensínstöðvum og sölustöðum um allt land. Með kaupunum stendur til að styrkja enn frekar innviði félaganna, styðja við frekari vöruþróun og mæta vaxandi kröfum neytenda um gæði og ferskleika í takt við breytta lífshætti.