Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

The Reykjavík EDITION er 5 stjörnu hótel við Hörpu í miðbæ Reykjavíkur sem opnaði á seinni hluta ársins 2021.
Árið 2016 leiddi SÍA III fjárfestingu í félaginu sem sá um rekstur og eignarhald hótelsins. Í desember 2022 gekk SÍA III frá sölu á öllum eignarhlut sínum í Reykjavík EDITION.

Terra var stofnað árið 1983, þá Íslenska Gámafélagið, og starfar í sorphirðu og umhverfisþjónustu, þar sem félagið þjónustar bæði fyrirtæki og sveitarfélög. Markaðssvæði félagsins er um land allt en helstu starfsstöðvar eru á höfuðborgarsvæðinu. Samstæða Terra samanstendur af: Terra umhverfisþjónustu, Terra einingum, Tæki.is og Öryggisgirðingum ehf.
SÍA III fjárfesti í Terra hf í júni 2017.
HD, áður Hamar, var stofnað árið 1998 og starfar félagið á sviði málmtækniiðnaðar og veitir fyrirtækjum og stofnunum viðhalds- og viðgerðarþjónustu. Stærstu viðskiptavinir félagsins starfa innan sjávarútvegs, stóriðju og orku- og veitustarfsemi.
Á árinu 2021 var gengið frá kaupum á þremur minni félögum, þ.m.t. Deili ehf. Félögin voru sameinuð undir nýju nafni og vörumerki árið 2022.
SÍA III fjárfesti í HD í maí 2018.

Lyfja var stofnað árið 1996 og er í dag ein víðfeðmasta apótekakeðja Íslands, með starfsemi um land allt. Félagið rekur einnig heildsöluna Heilsu.
SÍA III fjárfesti í Lyfju árið 2018 og gengið var frá sölu til Festi í júlí 2024.

Men&Mice er rótgróið hugbúnaðarfyrirtæki sem starfar á markaði DDI netlausna. Meðal viðskiptavina M&M hafa verið mörg stærstu fyrirtæki heims, t.a.m. Microsoft, AT&T, FedEX og Unilever.
SÍA III fjárfesti í Men&Mice árið 2019 og seldi hlut sinn til BlueCat Networks í maí 2023.