26.08.2026
Árshlutareikningur SÍL 3 hs. 30.6.2026
Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL 3 hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í október árið 2025.
Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 34 þús. kr. á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
Eignir sjóðsins í lok júní 2026 námu 7.059 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins, efnahagi hans 30. júní 2026 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is
Nánari upplýsingar veitir Fríða Einarsdóttir í síma 660 0642, frida.einarsdottir@stefnir.is