27.08.2025

Árs­hluta­reikn­ing­ur SÍL hs. 30.06. 2025

Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í apríl árið 2021.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 50 þús. kr. á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.

  • Eignir sjóðsins í lok júní 2024 námu 4.270 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins, efnahagi hans 30. júní 2025 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. stefnir.is

Nánari upplýsingar veitir Fríða Einarsdóttir í síma 660 0642, frida.einarsdottir@stefnir.is

Viðhengi:

SIL arshlutareikningur 30.06.2025.pdf

Tilkynning í kauphöll

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
16. mars 2026

SÍL 3 hs. - ákvörðun vaxta og almenn upplýsingagjöf

Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 35 6 munu vextir skuldabréfsins fyrir tímabilið 20. mars 2026 til 19. júní 2026 verða 10,5%.

Lesa meira
16. mars 2026

SÍL 2 hs. - ákvörðun vaxta og almenn upplýsingagjöf

Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 23 1 verður óregluleg afborgun kr. 15.000.000 á næsta gjalddaga skuldabréfsins 20. mars 2026.

Lesa meira
11. mars 2026

SÍL hs. - innborgun á höfuðstól

Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 21 1 mun útgefandi nýta sér heimild og greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins þann 18. mars nk.

Lesa meira
Árshlutareikningur SÍL hs. 30.06. 2025 - Stefnir