19.02.2025

Árs­reikn­ing­ur SEL I hs. 2024

Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SEL I hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í nóvember árið 2024.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2024 að fjárhæð 4 USD samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.

  • Eignir sjóðsins í árslok 2024 námu 32.701.414 USD og hrein eign sjóðsins nam 104 USD samkvæmt efnahagsreikningi.

  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2024, efnahag hans 31. desember 2024 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2024, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf.

Nánari upplýsingar veita Róbert Vilhjálmur Ásgeirsson, robert.asgeirsson@stefnir.is og Per Matts Henje, per.henje@stefnir.is

Viðhengi:

SEL I arsreikningur 31.12.2024.pdf

Tilkynning í kauphöll

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
08. apríl 2026

SÍL hs. - innborgun á höfuðstól

Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 21 1 mun útgefandi nýta sér heimild og greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins þann 15. apríl nk.

Lesa meira
08. apríl 2026

SÍL 2 hs. - Innborgun á höfuðstól

Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 23 1 mun útgefandi nýta sér heimild og greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins þann 15. apríl nk.

Lesa meira
27. mars 2026

SÍL 3 hs. - Stækkun skuldabréfaflokks

Útgefandi mun stækka skuldabréfaflokkinn SIL 35 6 í samræmi við áskriftarloforð að nafnvirði 1.202.500.000 kr. þann 9. apríl næstkomandi. Heildarnafnvirði flokksins að lokinni stækkun verður 4.705.000.000 kr.

Lesa meira
Ársreikningur SEL I hs. 2024 - Stefnir