21.02.2024

Árs­reikn­ing­ur SÍL hs. 2023

Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í apríl árið 2021.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2023 að fjárhæð 85 þús. kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.

  • Eignir sjóðsins í árslok 2023 námu 5.324 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2023, efnahag hans 31. desember 2023 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2023, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. stefnir.is


Nánari upplýsingar veitir Anna Kristjánsdóttir í síma 444 7461, anna.kristjansdottir@stefnir.is

Tilkynning í Kauphöll

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
16. mars 2026

SÍL 3 hs. - ákvörðun vaxta og almenn upplýsingagjöf

Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 35 6 munu vextir skuldabréfsins fyrir tímabilið 20. mars 2026 til 19. júní 2026 verða 10,5%.

Lesa meira
16. mars 2026

SÍL 2 hs. - ákvörðun vaxta og almenn upplýsingagjöf

Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 23 1 verður óregluleg afborgun kr. 15.000.000 á næsta gjalddaga skuldabréfsins 20. mars 2026.

Lesa meira
11. mars 2026

SÍL hs. - innborgun á höfuðstól

Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 21 1 mun útgefandi nýta sér heimild og greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins þann 18. mars nk.

Lesa meira
Ársreikningur SÍL hs. 2023 - Stefnir