26.02.2026
Ársreikningur SÍL hs. 2025
Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í apríl árið 2021.
Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2025 að fjárhæð 102 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
Eignir sjóðsins í árslok 2025 námu 3.771 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2025, efnahag hans 31. desember 2025 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2025, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf.
Nánari upplýsingar veitir Fríða Einarsdóttir í síma 660-0642, frida.einarsdottir@stefnir.is