17.02.2022

Árs­reikn­ing­ur SÍL hs. árið 2021

Sérhæfði sjóðurinn SÍL hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í apríl árið 2021.

  • Hagnaður var af rekstri sjóðsins að fjárhæð 10 þús. kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.

  • Eignir sjóðsins í árslok 2021 námu 8.133 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2021, efnahagi hans 31. desember 2021 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2021, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. stefnir.is

Nánari upplýsingar veitir Anna Kristjánsdóttir í síma 444 7461.

Tilkynning í Kauphöll

Viðhengi


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
08. apríl 2026

SÍL hs. - innborgun á höfuðstól

Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 21 1 mun útgefandi nýta sér heimild og greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins þann 15. apríl nk.

Lesa meira
08. apríl 2026

SÍL 2 hs. - Innborgun á höfuðstól

Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 23 1 mun útgefandi nýta sér heimild og greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins þann 15. apríl nk.

Lesa meira
27. mars 2026

SÍL 3 hs. - Stækkun skuldabréfaflokks

Útgefandi mun stækka skuldabréfaflokkinn SIL 35 6 í samræmi við áskriftarloforð að nafnvirði 1.202.500.000 kr. þann 9. apríl næstkomandi. Heildarnafnvirði flokksins að lokinni stækkun verður 4.705.000.000 kr.

Lesa meira
Ársreikningur SÍL hs. árið 2021 - Stefnir