08.04.2026
SÍL hs. - innborgun á höfuðstól
Í samræmi við skilmála skuldabréfsins SIL 21 1 mun útgefandi nýta sér heimild og greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins þann 15. apríl nk. Um er að ræða óreglulega afborgun að fjárhæð kr. 540.000.000 að viðbættum vöxtum og verðbótum. Ástæða afborgunarinnar er uppgreiðsla á undirliggjandi eignum í eigu útgefanda.