27.12.2024

Engin upp­hafs­þókn­un af kaup­um í sjóð­um til og með 10. janú­ar

Engin upphafsþóknun er við kaup í sjóðum Stefnis frá 27. desember 2024 til og með 10. janúar 2025. Afslátturinn af þóknun gildir við kaup sem eiga sér stað í Arion appinu eða netbanka.

Ófjárráða njóta að sjálfsögðu einnig 100% afsláttar á sama tímabili og viðskiptabeiðnir þurfa þá að berast til radgjof@arionbanki.is.

Stefnir hefur upp á að bjóða eitt fjölbreyttasta sjóðaúrval hér á landi. Allir sem vilja ávaxta fé sitt ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru skuldabréfasjóðir, innlendir eða erlendir hlutabréfasjóðir eða blandaðir sjóðir.

Við kaup í sjóðum er innheimt söluþóknun í formi mismunar á kaup- og sölugengi (einnig kallað gengismunur eða upphafsþóknun). Söluþóknun er ekki innheimt við kaup í Stefni - Lausafjársjóði og Stefni - Sparifjársjóði. Í netbanka Arion banka er ávallt veittur 25% afsláttur af söluþóknun sjóða Stefnis sem er 100% afsláttur í dag og til og með 10. janúar 2025. Í reglubundnum sparnaði hlýtur þú 50% afslátt af söluþóknun viðkomandi sjóðs.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. maí 2026

Nýir eigendur að Sóma

Framtakssjóðurinn SÍA V, sem stýrt er af Stefni hf., hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Sóma ehf., einu þekktasta og elsta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins á sviði samloka og tilbúinna rétta.

Lesa meira
27. mars 2026

Þrír nýir vefir – Arion banki, Vörður og Stefnir

Arion banki, Vörður og Stefnir mynda Arion samstæðuna sem um árabil hefur boðið viðskiptavinum heildstætt vöruframboð þegar kemur að fjármálum og tryggingum.

Lesa meira
06. mars 2026

SÍA V fjárfestir í Lava Show

Samkomulag hefur náðst milli meirihluta hluthafa Icelandic Lava Show ehf. og stofnenda félagsins, ásamt SÍA V, framtakssjóði í rekstri Stefnis, um kaup á 95% hlutafjár félagsins. Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Lesa meira