30.06.2026

Stefnir – Arð­greiðslu­sjóður greið­ir arð til sjóð­félaga

Stefnir - Arðgreiðslusjóður hs. greiðir í dag út arð til 1228 sjóðfélaga sjóðsins og nam arðgreiðsluhlutfall 4,76 kr. á hlut eða 4,55% af heildarstærð sjóðsins. Sjóðurinn er sá eini sinnar tegundar hér á landi sem greiðir uppsafnaðar arðgreiðslur til sjóðfélaga einu sinni á ári.

Helstu kostir Stefnis – Arðgreiðslusjóðs
  1. Sjóðurinn býður upp á að kaupa í félögum sem sögulega hafa greitt arð í einu.

  2. Útgreiðsla arðs er einu sinni á ári.

  3. Að eiga í Stefni - Arðgreiðslusjóði auðveldar gerð á skattskýrslu þar sem ekki þarf að færa inn kaup og sölur í einstökum félögum og færa marga arðmiða.

  4. Auðvelt er að stýra því hvernig arðgreiðslan er greidd til hlutdeildarskírteinishafa.

Stefnir - Arðgreiðslusjóður er ólíkur hefðbundnum hlutabréfasjóðum að því leyti að arður er greiddur til hlutdeildarskírteinishafa. Félögin sem sjóðurinn á í ráðstafa afkomu sinni að einhverju leyti með greiðslu til hluthafa í formi arðgreiðslna. Því fær sjóðurinn greiddan arð sem hann svo skilar til hlutdeildarskírteinishafa á hverju ári.

Sjóðurinn fjárfestir í félögum sem hafa sögulega greitt arð og/eða eru líkleg til að greiða arð innan 12 mánaða. Sjóðurinn tekur fyrst og fremst stöður í hlutabréfum íslenskra hlutafélaga og hlutafélaga með starfsemi á Íslandi, sem skráð eru í NASDAQ OMX Nordic Iceland, First North markaðnum, eða annarri viðurkenndri kauphöll eða markaðstorgi fjármálagerninga.

Hagnaður af innlausn hlutdeildarskírteina sjóðsins er skattskyldur á Íslandi og fer um skattskyldu hagnaðar samkvæmt lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og staðgreiðslu samkvæmt lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur. Um frekari skattlagningu getur verið að ræða. Fjármagnstekjuskattur reiknast þegar hlutdeildarskírteini eru seld með hagnaði eða þegar arður er greiddur af hlutdeildarskírteinum. Varðandi aðila búsetta í öðrum löndum en á Íslandi er athygli vakin á að kanna hvort um sé að ræða skattlagningu umfram þá sem er á Íslandi.

Hvenær fæ ég arðinn?

Arður er greiddur 30. júní og er hann greiddur á vörslusafn eiganda. Hægt er að fá arðinn greiddan sjálfkrafa á bankareikning og má finna upplýsingar um ferlið í spurt og svarað undir Hvernig virk­ar Stefnir - Arð­greiðslu­sjóður?

Þarf ég að eiga í sjóðnum í heilt ár?

Nei, allir sem eiga hlutdeildarskírteini í Stefni – Arðgreiðslusjóði í dagslok þann 28. júní fá greiddan arð þann 30. júní.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
30. júní 2026

Stefnir – Arð­greiðslu­sjóður greið­ir arð til sjóð­félaga

Stefnir - Arðgreiðslusjóður hs. greiðir í dag út arð til 1228 sjóðfélaga sjóðsins og nam arðgreiðsluhlutfall 4,76 kr. á hlut eða 4,55% af heildarstærð sjóðsins.

Lesa meira
29. maí 2026

Nýir eigendur að Sóma

Framtakssjóðurinn SÍA V, sem stýrt er af Stefni hf., hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Sóma ehf., einu þekktasta og elsta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins á sviði samloka og tilbúinna rétta.

Lesa meira
27. mars 2026

Þrír nýir vefir – Arion banki, Vörður og Stefnir

Arion banki, Vörður og Stefnir mynda Arion samstæðuna sem um árabil hefur boðið viðskiptavinum heildstætt vöruframboð þegar kemur að fjármálum og tryggingum.

Lesa meira