04.09.2024

Eng­in upp­hafs­þókn­un af kaup­um í sjóð­um til og með 9. sept­em­ber

Engin þóknun er við kaup í sjóðum Stefnis frá 30. ágúst 2024 til og með 9. september 2024. Afslátturinn af þóknun gildir við kaup sem eiga sér stað í Arion appinu eða netbanka.Ófjárráða njóta að sjálfsögðu einnig 100% afsláttar á sama tímabili og viðskiptabeiðnir þurfa þá að berast til radgjof@arionbanki.is.Stefnir hefur upp á að bjóða eitt fjölbreyttasta sjóðaúrval hér á landi. Allir sem vilja ávaxta fé sitt ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru skuldabréfasjóðir, innlendir eða erlendir hlutabréfasjóðir eða blandaðir sjóðir.

Við kaup í sjóðum er innheimt söluþóknun í formi mismunar á kaup-og sölugengi (einnig kallað gengismunur eða upphafsþóknun). Söluþóknun er ekki innheimt við kaup í Stefni - Lausafjársjóði og Stefni - Sparifjársjóði. Í netbanka Arion banka er ávallt veittur 25% afsláttur af söluþóknun sjóða Stefnis sem er 100% afsláttur í dag og til og með 5. febrúar 2024. Í reglubundnum sparnaði hlýtur þú 50% afslátt af söluþóknun viðkomandi sjóðs.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
06. mars 2026

SÍA V fjárfestir í Lava Show

Samkomulag hefur náðst milli meirihluta hluthafa Icelandic Lava Show ehf. og stofnenda félagsins, ásamt SÍA V, framtakssjóði í rekstri Stefnis, um kaup á 95% hlutafjár félagsins. Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Lesa meira
03. mars 2026

Hálfsársbréf frá framkvæmdastjóra Stefnis til eigenda í sjóðum

Meðfylgjandi er annað hálfsárs-bréf framkvæmdastjóra Stefnis. Þar er farið yfir helstu atriði í rekstri Stefnis, stöðu á verðbréfamörkuðum og hugleiðingar um þróun hagkerfisins.

Lesa meira
17. desember 2025

Stefnir styður við aukið aðgengi að íbúðum í sameignarformi

Stefnir hefur gert breytingar á sameignarforminu sem sex sjóðir í rekstri fyrirtækisins hafa boðið fasteignarkaupendum í samvinnu við byggingaraðila. Breytingarnar fela í sér að leiga verður greidd mánaðarlega í stað þess að safnast upp.

Lesa meira
Engin upphafsþóknun af kaupum í sjóðum til og með 9. september - Stefnir