15.04.2025

Engin upp­hafs­þókn­un eða lágmarks­kaup í sjóð­um Stefnis

Engin upphafsþóknun eða lágmarkskaup í sjóðum Stefnis

Stefnir hefur fellt niður upphafsþóknun vegna viðskipta í sjóðum félagsins þegar viðskipti eiga sér stað í gegnum Arion appið eða netbanka þar sem ekkert afgreiðslugjald er tekið af viðskiptum. Kjósi viðskiptavinir hins vegar að framkvæma viðskiptin í gegnum síma eða í útibúi Arion banka þá er tekið afgreiðslugjald. Jafnframt er ekki lengur gerð krafa um lágmarksupphæð viðskipta í stökum sjóðum eða í áskrift óháð því hvernig viðskiptin eiga sér stað. Þannig er nú hagkvæmara og einfaldara en nokkru sinni að spara með því að fjárfesta í sjóðum Stefnis eða með því að hefja reglulegan sparnað í gegnum áskrift með stafrænum hætti.Stefnir hefur upp á að bjóða eitt fjölbreyttasta sjóðaúrval hér á landi. Allir sem vilja ávaxta fé sitt ættu að finna eitthvað við sitt hæfi hvort sem það eru skuldabréfasjóðir, innlendir eða erlendir hlutabréfasjóðir, blandaðir sjóðir eða sjóðir á sviði sjálfbærni. Þar sem ekki er gerð krafa um lágmarksupphæð þá getur hver og einn fjárfest fyrir þá upphæð sem hentar best, hvort sem hún er stór eða smá.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
1. október 2026

Stefnir 30 ára: Vöxtur, nýsköpun og aukið aðgengi að sparnaði fyrir alla

Við hjá Stefni fögnum 30 ára starfsafmæli í ár. Frá stofnun árið 1996 hefur Stefnir vaxið í eitt farsælasta sjóðastýringarfélag landsins. Hjá okkur starfa nú tuttugu manns og eru rúmlega 390 milljarðar króna í virkri stýringu félagsins.

Lesa meira
9. september 2026

Hálfs­árs­bréf frá framkvæmda­stjóra Stefnis til eigenda í sjóð­um

Meðfylgjandi er hálfsársbréf framkvæmdastjóra Stefnis. Þar er farið yfir helstu atriði í rekstri Stefnis, stöðu á verðbréfamörkuðum og hugleiðingar um þróun hagkerfisins.

Lesa meira
30. júní 2026

Stefnir – Arð­greiðslu­sjóður greið­ir arð til sjóð­félaga

Stefnir - Arðgreiðslusjóður hs. greiðir í dag út arð til 1228 sjóðfélaga sjóðsins og nam arðgreiðsluhlutfall 4,76 kr. á hlut eða 4,55% af heildarstærð sjóðsins.

Lesa meira