09.01.2025

Fram­taks­sjóðurinn SÍA IV kaup­ir meiri­hluta hluta­fjár In­ter­nets á Ís­landi hf.

Framtakssjóðurinn SÍA IV kaupir meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf.

Samkomulag hefur náðst á milli hluthafa Internets á Íslandi hf. (ISNIC) og SÍA IV slhf., framtakssjóðs í rekstri Stefnis og að meirihluta í eigu lífeyrissjóða, um kaup á meirihluta hlutafjár ISNIC. Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.ISNIC er skráningarstofa landshöfuðlénsins .is og sinnir rekstri þess auk þess að reka miðlæga internettengipunktinn RIX. ISNIC hefur skráð .is lén frá árinu 1988 og eru skráð .is lén í dag yfir 94 þúsund talsins, en rétthafar lénanna eru bæði innlendir og erlendir aðilar.Ólöf Pétursdóttir, sjóðstjóri SÍA IV:
„Við hlökkum til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins og .is lénsins með því góða starfsfólki sem starfar hjá félaginu.“

Um SÍA IV framtakssjóð í rekstri Stefnis

SÍA IV er fjórði sjóðurinn í röð SÍA framtakssjóða sem hófu starfsemi árið 2011 og hafa frá þeim tíma leitt fjárfestingar í íslensku atvinnulífi fyrir yfir 50 milljarða króna. SÍA sjóðirnir hafa undanfarinn áratug átt þátt í því að fjölga fjárfestingarkostum og snertiflötum fjárfesta við innlent atvinnulíf með fjárfestingum í fjölbreyttri flóru fyrirtækja. Þá hafa sjóðirnir tekið þátt í uppbyggingu skráðs hlutabréfamarkaðar hér á landi, bæði með nýskráningum félaga í eigu sjóðanna í kauphöll og sölu til skráðra fyrirtækja.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. maí 2026

Nýir eigendur að Sóma

Framtakssjóðurinn SÍA V, sem stýrt er af Stefni hf., hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Sóma ehf., einu þekktasta og elsta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins á sviði samloka og tilbúinna rétta.

Lesa meira
27. mars 2026

Þrír nýir vefir – Arion banki, Vörður og Stefnir

Arion banki, Vörður og Stefnir mynda Arion samstæðuna sem um árabil hefur boðið viðskiptavinum heildstætt vöruframboð þegar kemur að fjármálum og tryggingum.

Lesa meira
06. mars 2026

SÍA V fjárfestir í Lava Show

Samkomulag hefur náðst milli meirihluta hluthafa Icelandic Lava Show ehf. og stofnenda félagsins, ásamt SÍA V, framtakssjóði í rekstri Stefnis, um kaup á 95% hlutafjár félagsins. Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Lesa meira