30.01.2025

Hauk­ur Guðna­son ráð­inn nýr áhættu­stjóri hjá Stefni hf.

Haukur Guðnason ráðinn nýr áhættustjóri hjá Stefni hf.

Haukur Guðnason hefur verið ráðinn nýr áhættustjóri hjá Stefni. Haukur býr yfir fjölþættri reynslu á sviði áhættustýringar og fjármála sem mun styðja við áframhaldandi ábyrga og vandaða ákvarðanatöku sjóða Stefnis.Haukur hefur verið staðgengill áhættustjóra hjá Fossum fjárfestingabanka frá árinu 2023, þar sem hann hafði umsjón með ýmsum verkefnum á sviði áhættustýringar en þar á undan vann hann í áhættustýringu Íslandsbanka frá 2012-2023. Haukur er með doktorspróf í líftækniverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) og M.Sc. í heilbrigðisverkfræði frá sama háskóla.Við hjá Stefni erum fullviss um að með víðtækri þekkingu og reynslu mun Haukur efla það mikilvæga starf sem áhættustýring Stefnis sinnir.Við bjóðum Hauk velkominn og hlökkum til samstarfsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
1. október 2026

Stefnir 30 ára: Vöxtur, nýsköpun og aukið aðgengi að sparnaði fyrir alla

Við hjá Stefni fögnum 30 ára starfsafmæli í ár. Frá stofnun árið 1996 hefur Stefnir vaxið í eitt farsælasta sjóðastýringarfélag landsins. Hjá okkur starfa nú tuttugu manns og eru rúmlega 390 milljarðar króna í virkri stýringu félagsins.

Lesa meira
9. september 2026

Hálfs­árs­bréf frá framkvæmda­stjóra Stefnis til eigenda í sjóð­um

Meðfylgjandi er hálfsársbréf framkvæmdastjóra Stefnis. Þar er farið yfir helstu atriði í rekstri Stefnis, stöðu á verðbréfamörkuðum og hugleiðingar um þróun hagkerfisins.

Lesa meira
30. júní 2026

Stefnir – Arð­greiðslu­sjóður greið­ir arð til sjóð­félaga

Stefnir - Arðgreiðslusjóður hs. greiðir í dag út arð til 1228 sjóðfélaga sjóðsins og nam arðgreiðsluhlutfall 4,76 kr. á hlut eða 4,55% af heildarstærð sjóðsins.

Lesa meira