29.05.2026

Nýir eigendur að Sóma

Framtakssjóðurinn SÍA V, sem stýrt er af Stefni hf., hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Sóma ehf., einu þekktasta og elsta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins á sviði samloka og tilbúinna rétta. Kaupin ná einnig til dótturfélagsins Þykkvabæjar ehf. og eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Seljendur eru þeir Arnþór Pálsson og Sigurður Ólafsson sem hafa leitt félagið í gegnum mikið vaxtar og uppbyggingarskeið á undanförnum árum. Arnþór mun láta af störfum við eigendaskiptin en Sigurður mun starfa áfram sem framkvæmdastjóri félagsins.

„Það er komið að ákveðnum tímamótum eftir farsælan og skemmtilegan tíma í rekstri Sóma. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt og það er fyrst og fremst okkar frábæra starfsfólki og tryggum viðskiptavinum að þakka. Ég tel að nú sé réttur tímapunktur fyrir nýja aðila að taka við eignarhaldi Sóma og leiða félagið í gegnum næsta vaxtarskeið. SÍA V hefur bæði burði og framtíðarsýn til að styðja vel við bakið á Sóma og ég hlakka til að fylgjast með framtíðarvegferð fyrirtækisins“, segir Arnþór Pálsson, fráfarandi eigandi Sóma.

Sómi, Júmbó og Þykkvabæjar hafa um áratugaskeið verið meðal fremstu vörumerkja á íslenskum neytendamarkaði. Samstæðan framleiðir fjölbreytt úrval af samlokum, vefjum, salötum og öðrum tilbúnum réttum sem seldir eru í verslunum, bensínstöðvum og sölustöðum um allt land. Með kaupunum stendur til að styrkja enn frekar innviði félaganna, styðja við frekari vöruþróun og mæta vaxandi kröfum neytenda um gæði og ferskleika í takt við breytta lífshætti.

„Við hjá SÍA V erum afar stolt og spennt yfir því að taka við keflinu hjá Sóma. Fyrirtækið á sér einstaka sögu og býr yfir sterkum vörumerkjum sem landsmenn þekkja og treysta. Markaðurinn fyrir tilbúna rétti og fljótlegar, hollar lausnir þegar kemur að mat er í miklum vexti og við sjáum mörg tækifæri til að byggja ofan á þann flotta grunn sem núverandi eigendur hafa skapað. Við hlökkum til að vinna með samhentu starfsfólki Sóma og Þykkvabæjar að áframhaldandi framþróun félagsins“, segir Ólöf Pétursdóttir hjá Stefni.

Stefnir lauk fjármögnun á framtakssjóðnum SÍA V á síðasta ári. Áskriftir í sjóðinn námu rúmum 15,2 milljörðum króna og eru fjárfestar hans að stærstum hluta stofnanafjárfestar. SÍA V er fimmti sjóðurinn í röð SÍA framtakssjóða sem hófu starfsemi árið 2011 og hafa frá þeim tíma leitt fjárfestingar fyrir um 50 milljarða króna. Frá upphafi hefur SÍA fjárfest í samtals 18 fyrirtækjum og hafa sex þeirra verið skráð í kauphallir hér á landi eða erlendis.

Deloitte var ráðgjafi seljenda við söluna en BBA//Fjeldco ráðgjafi kaupanda.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. maí 2026

Nýir eigendur að Sóma

Framtakssjóðurinn SÍA V, sem stýrt er af Stefni hf., hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Sóma ehf., einu þekktasta og elsta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins á sviði samloka og tilbúinna rétta.

Lesa meira
27. mars 2026

Þrír nýir vefir – Arion banki, Vörður og Stefnir

Arion banki, Vörður og Stefnir mynda Arion samstæðuna sem um árabil hefur boðið viðskiptavinum heildstætt vöruframboð þegar kemur að fjármálum og tryggingum.

Lesa meira
06. mars 2026

SÍA V fjárfestir í Lava Show

Samkomulag hefur náðst milli meirihluta hluthafa Icelandic Lava Show ehf. og stofnenda félagsins, ásamt SÍA V, framtakssjóði í rekstri Stefnis, um kaup á 95% hlutafjár félagsins. Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Lesa meira
Nýir eigendur að Sóma - Stefnir