21.11.2024

Stefnir leit­ar að áhættu­stjóra

Stefnir leitar að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingi í starf áhættustjóra með reynslu og þekkingu á verðbréfamörkuðum innlendum sem erlendum. Áhættustjóri gegnir mikilvægu hlutverki hjá Stefni og stuðlar að traustri umgjörð áhættustýringar með faglegum hópi einstaklinga í síbreytilegu umhverfi.

Helstu verkefni

  • Yfirsjón með umgjörð og skipulagi áhættustýringar innan félagsins.

  • Mæling og eftirlit með fjárhagslegri og ófjárhagslegri áhættu samkvæmt áhættuvilja og áhættustefnu samþykktri af stjórn.

  • Gerð skýrslna, úttektir og kynningar fyrir haghafa félagsins.

  • Samvinna með stjórnendum, sjóðsstjórum og stjórn félagsins.

  • Samskipti við innri og ytri eftirlitsaðila.

  • Fræðsla til starfsfólks og virk þátttaka í umbótastarfi.

Hæfniskröfur

  • Menntun á sviði verkfræði, stærðfræði, tölfræði, tölvunarfræði eða sambærilegum greinum.

  • Reynsla sem nýtist í starfi.

  • 5 ára starfsreynsla úr atvinnulífi.

  • Próf í verðbréfaviðskiptum.

  • Þekking og brennandi áhugi á verðbréfamörkuðum.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni á íslensku og ensku.

  • Frumkvæði, drifkraftur og fagmennska.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis, netfang: jon.finnbogason@stefnir.is

Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2024 og er tekið við umsóknum á stefnir.is

Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
1. október 2026

Stefnir 30 ára: Vöxtur, nýsköpun og aukið aðgengi að sparnaði fyrir alla

Við hjá Stefni fögnum 30 ára starfsafmæli í ár. Frá stofnun árið 1996 hefur Stefnir vaxið í eitt farsælasta sjóðastýringarfélag landsins. Hjá okkur starfa nú tuttugu manns og eru rúmlega 390 milljarðar króna í virkri stýringu félagsins.

Lesa meira
9. september 2026

Hálfs­árs­bréf frá framkvæmda­stjóra Stefnis til eigenda í sjóð­um

Meðfylgjandi er hálfsársbréf framkvæmdastjóra Stefnis. Þar er farið yfir helstu atriði í rekstri Stefnis, stöðu á verðbréfamörkuðum og hugleiðingar um þróun hagkerfisins.

Lesa meira
30. júní 2026

Stefnir – Arð­greiðslu­sjóður greið­ir arð til sjóð­félaga

Stefnir - Arðgreiðslusjóður hs. greiðir í dag út arð til 1228 sjóðfélaga sjóðsins og nam arðgreiðsluhlutfall 4,76 kr. á hlut eða 4,55% af heildarstærð sjóðsins.

Lesa meira