20.06.2025

Stefnir leit­ar að sér­fræðingum í áhuga­verð störf

Stefnir leitar að sérfræðingum í áhugaverð störf

Greining, sjálfbærni og sjálfvirkni

Leitað er að einstaklingum með brennandi áhuga á sjóðastýringu og íslensku atvinnu- og efnahagslífi. Um er að ræða starf sérfræðings í almenn störf innan teymisins Greining, sjálfbærni og sjálfvirkni.Helstu verkefni fela í sér mat á fjárfestingarkostum og atvinnugreinum til að styðja við ákvarðanatöku fjárfestingarteyma félagsins auk ýmissa verkefna sem snúa að rekstri sjóða og félagsins.Helstu verkefni:

  • Greining á mörkuðum, atvinnugreinum og fjárfestingarkostum

  • Gerð verðmata og arðsemisútreikninga

  • Skýrslugjöf og framsetning gagna

  • Gerð kynningarefnis

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. fjármál, viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærilegt

  • Þekking og áhugi á viðskiptum

  • Nákvæm og góð vinnubrögð

  • Færni í upplýsingamiðlun

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

  • Reynsla af fjármálamarkaði er kostur

Ráðningarferlið fer fram í gegnum Opus Futura:

  • Opus Futura er ráðningarvettvangur sem tryggir hlutlægt, nafnlaust og sanngjarnt ráðningarferli.

  • Umsækjendur sækja um með því að fylla út prófíl á www.opusfutura.is

  • Pörun við starfið fer fram í gegnum kerfið, ef pörun verður fær umsækjandi tilkynningu og getur þá ákveðið hvort hann vilji halda áfram í ferlinu.

Umsóknarfrestur: Síðasti pörunardagur er 26. júní 2025.Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
1. október 2026

Stefnir 30 ára: Vöxtur, nýsköpun og aukið aðgengi að sparnaði fyrir alla

Við hjá Stefni fögnum 30 ára starfsafmæli í ár. Frá stofnun árið 1996 hefur Stefnir vaxið í eitt farsælasta sjóðastýringarfélag landsins. Hjá okkur starfa nú tuttugu manns og eru rúmlega 390 milljarðar króna í virkri stýringu félagsins.

Lesa meira
9. september 2026

Hálfs­árs­bréf frá framkvæmda­stjóra Stefnis til eigenda í sjóð­um

Meðfylgjandi er hálfsársbréf framkvæmdastjóra Stefnis. Þar er farið yfir helstu atriði í rekstri Stefnis, stöðu á verðbréfamörkuðum og hugleiðingar um þróun hagkerfisins.

Lesa meira
30. júní 2026

Stefnir – Arð­greiðslu­sjóður greið­ir arð til sjóð­félaga

Stefnir - Arðgreiðslusjóður hs. greiðir í dag út arð til 1228 sjóðfélaga sjóðsins og nam arðgreiðsluhlutfall 4,76 kr. á hlut eða 4,55% af heildarstærð sjóðsins.

Lesa meira