04.08.2022

Stefnir leit­ar að sér­fræðingum og nem­um í áhuga­verð störf

Leitað er að einstaklingum með brennandi áhuga á sjóðastýringu og íslensku atvinnu- og efnahagslífi. Stefnir er rótgróið íslenskt sjóðastýringarfyrirtæki með um 300 ma. kr. af eignum sjóða í stýringu. Stefnir leitar nú að sérfræðingum til að styðja við vinnu í fjárfestingarteymum félagsins.

Helstu verkefni

  • Greiningar á mörkuðum og fjárfestingakostum

  • Skýrslugjöf og framsetning gagna

  • Gerð kynningarefnis

Hæfniskröfur

  • Háskólanám sem nýtist í starfi

  • Þekking og brennandi áhugi á íslensku atvinnulífi

  • Nákvæm og öguð vinnubrögð

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri, netfang:
jon.finnbogason@stefnir.is

Umsóknarfrestur til og með 19. ágúst 2022 og skulu umsóknir sendar á starf@stefnir.is

Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.


Stefnir leitar að nemum sem vilja vinna með skóla

Leitað er að einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa í um 25% starfi með háskólanámi. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma bæði á og utan starfsstöðvar. Stefnir er rótgróið íslenskt sjóðastýringarfyrirtæki með um 300 ma. kr. af eignum sjóða í stýringu.

Helstu verkefni

  • Afmörkuð verkefni sem snúa að stýringu sjóða

  • Framsetning upplýsinga og miðlun

  • Greiningar af ýmsu tagi

Hæfniskröfur

  • Nákvæm og öguð vinnubrögð

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

  • Sveigjanleiki

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristbjörg M. Kristinsdóttir, fjármálastjóri, netfang:
kristbjorg.kristinsdottir@stefnir.is

Umsóknarfrestur til og með 19. ágúst 2022 og skulu umsóknir sendar á starf@stefnir.is

Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
1. október 2026

Stefnir 30 ára: Vöxtur, nýsköpun og aukið aðgengi að sparnaði fyrir alla

Við hjá Stefni fögnum 30 ára starfsafmæli í ár. Frá stofnun árið 1996 hefur Stefnir vaxið í eitt farsælasta sjóðastýringarfélag landsins. Hjá okkur starfa nú tuttugu manns og eru rúmlega 390 milljarðar króna í virkri stýringu félagsins.

Lesa meira
9. september 2026

Hálfs­árs­bréf frá framkvæmda­stjóra Stefnis til eigenda í sjóð­um

Meðfylgjandi er hálfsársbréf framkvæmdastjóra Stefnis. Þar er farið yfir helstu atriði í rekstri Stefnis, stöðu á verðbréfamörkuðum og hugleiðingar um þróun hagkerfisins.

Lesa meira
30. júní 2026

Stefnir – Arð­greiðslu­sjóður greið­ir arð til sjóð­félaga

Stefnir - Arðgreiðslusjóður hs. greiðir í dag út arð til 1228 sjóðfélaga sjóðsins og nam arðgreiðsluhlutfall 4,76 kr. á hlut eða 4,55% af heildarstærð sjóðsins.

Lesa meira