14.12.2022

Stefnir slít­ur SÍA I eft­ir sölu á hlut í Jarð­bor­unum

Stefnir sleit í dag sjóðnum SÍA I sem hefur skilað hlutdeildarskírteinishöfum sínum rúmlega 17% ávöxtun á ári frá stofnun. Sjóðurinn var stofnaður árið 2011 og lauk fjárfestingartímabili sínu árið 2013. Á meðal fjárfestinga sjóðsins voru öflug rekstrarfélög eins og Hagar og Sjóvá en einnig Sjóklæðagerðin 66°N og Jarðboranir. Hagar og Sjóvá voru skráð í Kauphöllina þar sem þau hafa dafnað vel en aðrar fjárfestingar voru seldar til annarra fjárfesta.

„Það er ánægjulegt að greiða síðustu greiðslu til hlutdeildarskírteinishafa í dag úr sjóðnum SÍA I en með því lokum við okkar fyrsta kafla í sögu framtaksfjárfestinga hjá Stefni. Við hjá Stefni viljum þakka öllum þeim sem hafa komið að starfi sjóðsins, bæði starfsmönnum og stjórnendum þeirra félaga sem við höfum fjárfest í, okkar meðfjárfestum og hluthöfum fyrir þeirra framlag til þessarar farsælu vegferðar,“ segir Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis.

Framtakssjóðurinn SÍA I var brautryðjandi á tíma þar sem íslenskt efnahagslíf var að ná vopnum sínum á ný. Alls eru athafnasjóðir sem Stefnir hefur stofnað og rekið á tímabilinu fjórir talsins og hafa þeir samtals fjárfest í íslensku atvinnulífi fyrir 28 milljarða króna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
1. október 2026

Stefnir 30 ára: Vöxtur, nýsköpun og aukið aðgengi að sparnaði fyrir alla

Við hjá Stefni fögnum 30 ára starfsafmæli í ár. Frá stofnun árið 1996 hefur Stefnir vaxið í eitt farsælasta sjóðastýringarfélag landsins. Hjá okkur starfa nú tuttugu manns og eru rúmlega 390 milljarðar króna í virkri stýringu félagsins.

Lesa meira
9. september 2026

Hálfs­árs­bréf frá framkvæmda­stjóra Stefnis til eigenda í sjóð­um

Meðfylgjandi er hálfsársbréf framkvæmdastjóra Stefnis. Þar er farið yfir helstu atriði í rekstri Stefnis, stöðu á verðbréfamörkuðum og hugleiðingar um þróun hagkerfisins.

Lesa meira
30. júní 2026

Stefnir – Arð­greiðslu­sjóður greið­ir arð til sjóð­félaga

Stefnir - Arðgreiðslusjóður hs. greiðir í dag út arð til 1228 sjóðfélaga sjóðsins og nam arðgreiðsluhlutfall 4,76 kr. á hlut eða 4,55% af heildarstærð sjóðsins.

Lesa meira