30.07.2021

Stefn­ir styrk­ir golf­mót­ið Ein­víg­ið á Nes­inu

Stefnir hf. styrkir eitt vinsælasta golfmót ársins, Einvígið á Nesinu, en mótið er góðgerðamót sem haldið er á vegum Nesklúbbsins á Seltjarnarnesi. Mótið er nú haldið í 25 skiptið en mótið fór fyrst fram 1996, árið sem Stefnir hf. var stofnað. Mótið er haldið á frídegi verslunarmanna, mánudaginn 2. ágúst og hefst kl. 13:00.

Margir af bestu kylfingum landsins munu taka þátt og leika í þágu góðs málefnis. Stefnir gefur vinningsupphæðina, eina milljón króna, sem mun að þessu sinni renna til BUGL, Barna- og Unglingadeildar Landspítalans.

Nánar má lesa um mótið á golf.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
27. mars 2026

Þrír nýir vefir – Arion banki, Vörður og Stefnir

Arion banki, Vörður og Stefnir mynda Arion samstæðuna sem um árabil hefur boðið viðskiptavinum heildstætt vöruframboð þegar kemur að fjármálum og tryggingum.

Lesa meira
06. mars 2026

SÍA V fjárfestir í Lava Show

Samkomulag hefur náðst milli meirihluta hluthafa Icelandic Lava Show ehf. og stofnenda félagsins, ásamt SÍA V, framtakssjóði í rekstri Stefnis, um kaup á 95% hlutafjár félagsins. Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Lesa meira
03. mars 2026

Hálfsársbréf frá framkvæmdastjóra Stefnis til eigenda í sjóðum

Meðfylgjandi er annað hálfsárs-bréf framkvæmdastjóra Stefnis. Þar er farið yfir helstu atriði í rekstri Stefnis, stöðu á verðbréfamörkuðum og hugleiðingar um þróun hagkerfisins.

Lesa meira
Stefnir styrkir golfmótið Einvígið á Nesinu - Stefnir